Snorri Steinn ósáttur: „Einhver undarlegasta ákvörðun sem ég hef séð HSÍ taka“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2021 14:05 Snorri Steinn Guðjónsson segir að fréttir dagsins hafi verið högg fyrir sig og leikmenn Vals. vísir/vilhelm Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari Vals, er mjög ósáttur og skilur hvorki upp né niður í leikjaáætlun Olís-deildar karla sem var gefin út í dag. Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi í dag og íslenskt íþróttafólk mátti þá byrja að æfa og keppa á ný eftir þriggja vikna hlé. Næsta sunnudag, 25. apríl, hefst Olís-deild karla á ný en aðeins með tveimur leikjum. Keppni fer ekki á fullt fyrr en eftir landsleikjahléið, sunnudaginn 9. maí eða eftir rúmar þrjár vikur þegar 16. umferð deildarinnar hefst. Gert er ráð fyrir því að keppni í Olís-deild karla ljúki 3. júní. Síðustu sjö umferðirnar í deildinni verða því leiknar á 25 dögum. „Mér finnst þetta vægast sagt ömurlegt,“ sagði Snorri Steinn í samtali við Vísi, aðspurður um nýju leikjaáætlunina sem var gefin út í dag. „Í mínum augum er algjörlega óskiljanlegt að mótið fari bara ekki af stað í næstu viku. Þetta er einhver undarlegasta ákvörðun sem ég hef séð HSÍ taka. Ég er virkilega vonsvikinn og fúll fyrir hönd allra leikmannanna. Ég get ekki ímyndað mér að það séu margir leikmenn sem vilji bíða í þrjá og hálfa viku til að spila loksins leik.“ Ekki upplitsdjarfir Að sögn Snorra Steins var hljóðið í leikmannahópi Vals þungt þegar hann greindi þeim frá því hvernig endasprettur tímabilsins yrði. „Ég er nýbúinn að tilkynna mínum leikmönnum að þetta verði svona og þeir voru ekki mjög upplitsdjarfir, vægt til orða tekið. Mér finnst þetta sorglegt og þetta eru undarleg vinnubrögð,“ sagði Snorri Steinn. Hann hefði helst kosið að byrja að spila strax í næstu viku. „Ég hefði klárlega viljað spila á fimmtudaginn og svo aftur á sunnudaginn. Það á að spila leiki á þessum árstíma og akkúrat núna ætti allt að vera undir. Mína menn þyrstir í að spila alvöru leiki. Eflaust eru einhver fræði á bak við þetta, varðandi meiðsli og annað slíkt, en þetta er ekkert úr hófi miðað við önnur tímabil,“ sagði Snorri Steinn. Set vinnubrögð HSÍ undir sama hatt og vinnubrögð EHF Þjálfarinn botnar lítið í því hvernig HSÍ vann þetta mál og komst að þessari niðurstöðu. „Þessar fréttir voru bara að koma en ég þarf allavega að endurhugsa þetta. Ég viðurkenni að ég reiknaði engan veginn með þessu og mér finnst þetta óstjórnlega skrítin ákvörðun,“ sagði Snorri Steinn. „Ég sá að framkvæmdastjóri HSÍ var að gagnrýna EHF fyrir undarleg vinnubrögð. Ég set þetta undir nákvæmlega sama hatt og þessi vinnubrögð hjá EHF.“ Valur er í 5. sæti Olís-deildarinnar. Fyrsti leikur liðsins eftir hléið er gegn Þór á Akureyri sunnudaginn 9. maí. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Olís-deild karla Valur Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Sjá meira
Nýjar sóttvarnareglur tóku gildi í dag og íslenskt íþróttafólk mátti þá byrja að æfa og keppa á ný eftir þriggja vikna hlé. Næsta sunnudag, 25. apríl, hefst Olís-deild karla á ný en aðeins með tveimur leikjum. Keppni fer ekki á fullt fyrr en eftir landsleikjahléið, sunnudaginn 9. maí eða eftir rúmar þrjár vikur þegar 16. umferð deildarinnar hefst. Gert er ráð fyrir því að keppni í Olís-deild karla ljúki 3. júní. Síðustu sjö umferðirnar í deildinni verða því leiknar á 25 dögum. „Mér finnst þetta vægast sagt ömurlegt,“ sagði Snorri Steinn í samtali við Vísi, aðspurður um nýju leikjaáætlunina sem var gefin út í dag. „Í mínum augum er algjörlega óskiljanlegt að mótið fari bara ekki af stað í næstu viku. Þetta er einhver undarlegasta ákvörðun sem ég hef séð HSÍ taka. Ég er virkilega vonsvikinn og fúll fyrir hönd allra leikmannanna. Ég get ekki ímyndað mér að það séu margir leikmenn sem vilji bíða í þrjá og hálfa viku til að spila loksins leik.“ Ekki upplitsdjarfir Að sögn Snorra Steins var hljóðið í leikmannahópi Vals þungt þegar hann greindi þeim frá því hvernig endasprettur tímabilsins yrði. „Ég er nýbúinn að tilkynna mínum leikmönnum að þetta verði svona og þeir voru ekki mjög upplitsdjarfir, vægt til orða tekið. Mér finnst þetta sorglegt og þetta eru undarleg vinnubrögð,“ sagði Snorri Steinn. Hann hefði helst kosið að byrja að spila strax í næstu viku. „Ég hefði klárlega viljað spila á fimmtudaginn og svo aftur á sunnudaginn. Það á að spila leiki á þessum árstíma og akkúrat núna ætti allt að vera undir. Mína menn þyrstir í að spila alvöru leiki. Eflaust eru einhver fræði á bak við þetta, varðandi meiðsli og annað slíkt, en þetta er ekkert úr hófi miðað við önnur tímabil,“ sagði Snorri Steinn. Set vinnubrögð HSÍ undir sama hatt og vinnubrögð EHF Þjálfarinn botnar lítið í því hvernig HSÍ vann þetta mál og komst að þessari niðurstöðu. „Þessar fréttir voru bara að koma en ég þarf allavega að endurhugsa þetta. Ég viðurkenni að ég reiknaði engan veginn með þessu og mér finnst þetta óstjórnlega skrítin ákvörðun,“ sagði Snorri Steinn. „Ég sá að framkvæmdastjóri HSÍ var að gagnrýna EHF fyrir undarleg vinnubrögð. Ég set þetta undir nákvæmlega sama hatt og þessi vinnubrögð hjá EHF.“ Valur er í 5. sæti Olís-deildarinnar. Fyrsti leikur liðsins eftir hléið er gegn Þór á Akureyri sunnudaginn 9. maí. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Olís-deild karla Valur Mest lesið Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Handbolti Ten Hag segir að eigendur United séu skynsamir og muni ekki reka hann Enski boltinn Leverkusen býður stuðningsmönnum frítt flúr til minningar um tímabilið Fótbolti „Við erum helvíti seigir“ Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Stór dagur fyrir Val Sport „Grét rosa mikið út af öllu og engu“ Sport Uppgjörið og viðtöl: Stjarnan - Fram 1-1 | Aftur komu Rúnarsmenn til baka Íslenski boltinn Casemiro komst ekki í Copa América-hóp Brassa Fótbolti Staðfestir verst geymda leyndarmál fótboltans Fótbolti Styrmir og félagar komnir í sumarfrí Körfubolti Fleiri fréttir Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Færeyingar hársbreidd frá fyrsta heimsmeistaramótinu Uppgjörið: Ísland - Eistland 50-25 | Stigu bensínið í botn frá fyrstu mínútu „Ánægður að við sýndum þá hlið að við getum verið góðir í sextíu mínútur“ Þakklátur eftir fyrsta landsleikinn: „Tek bara einn dag fyrir í einu“ „Ekkert sjálfgefið að valta yfir lið“ Skyldusigur í kvöld: „Þurfum að koma okkur inn á HM“ Einar Bragi verður einn af strákunum okkar í kvöld „Það er stórmót í húfi“ Stjörnumarkvörðurinn í vandræðum með augað á sér Ísland eignast nýtt EHF dómarapar Bleyjur og klósettpappír áhorfenda kostuðu ÍBV Enn hægt að fá miða á HM-leikinn í kvöld Farangurinn flæktist fyrir Gísla: „Kom beint af flugvellinum“ Undanúrslit í Meistaradeildinni klár „Bara að fara heim og hitta mömmu“ Fjórir frá vegna meiðsla: „Dagurinn ekkert frábær á skrifstofunni“ „Höfum spilað vel án Arons áður“ „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Uppgjör og viðtöl: FH - ÍBV 34-27 | Aronslausir FH-ingar tryggðu sér sæti í úrslitum Guðmundur og Íslendingalið Ribe-Esbjerg í undanúrslit Afturelding einum sigri frá úrslitum Magdeburg á toppinn eftir stórleik Íslendinganna Sjá meira