Enski boltinn

Klopp: Eitt besta Meistaradeildarkvöldið hans hjá Liverpool

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jürgen Klopp fór beint til markvarðarins Caoimhin Kelleher í leikslok og gaf honum eitt gott Klopp knús.
Jürgen Klopp fór beint til markvarðarins Caoimhin Kelleher í leikslok og gaf honum eitt gott Klopp knús. AP/Michael Regan

Jürgen Klopp brosti sínu breiðasta eftir sigurinn á Ajax í gær og ungu strákarnir fengu sérstakt knús í leikslok enda stóðu þeir sig mjög vel í leiknum.

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, var heldur betur ánægður eftir sigur liðsins á Ajax í Meistaradeildinni í gær en með honum tryggði Liverpool sér sæti í sextán liða úrslitunum og sigur í riðlinum fyrir lokaleikinn.

Það hefur gengið á ýmsu hjá Liverpool að undanförnu, mikið hefur verið um meiðsli lykilmanna og liðið náði ekki góðum úrslitum í tveimur síðustu leikjum. Það var því mikill léttir fyrir þýska stjórann að fá sigur sem gefur honum tækifæri til að hvíla lykilleikmenn í næstu viku.

Það mátti líka greina á orðum Klopp að sigurinn í gær skipti hann miklu máli og gleðiefni var líka frammistaða ungu strákanna. Hinn nítján ára gamli Curtis Jones skoraði nefnilega sigurmarkið eftir stoðsendingu frá jafnaldra sínum Neco Williams og þá stóð ungi markvörðurinn Caoimhin Kelleher sig vel og hélt hreinu í sínum fyrsta Meistaradeildarleik.

„Við höfum ekki fengið mörg tækifæri til að brosa í núverandi ástandi. Síðan við fórum að spila án áhorfenda þá var þetta mikilvægasti sigurinn, sá erfiðasti og sá besti,“ sagði Jürgen Klopp eftir leikinn.

Klopp er á því að þetta hafi verið eitt besta Meistaradeildarkvöldið hans hjá Liverpool sem segir mikið til um pressuna sem var búin að myndast í öllum erfiðleikum síðustu vikna. Nú fékk Þjóðverjinn hins vegar mikilvægan sigur og jákvæð skilaboð frá mörgum ungum leikmönnum liðsins.

„Curtis Jones átti þvílíkan leik. Ég er virkilega stoltur af honum. hann er mjög góður strákur, góður leikmaður og ég ánægður að hafa hann hjá okkur,“ sagði Klopp en Curtis Jones skoraði þarna sitt fyrsta mark í Meistaradeildinni. Hann er aðeins þriðji táningurinn sem skorar fyrir Liverpool í Meistaradeildinni.

Liverpool er án níu leikmanna aðalliðsins og það hefur opnað dyr fyrir yngri menn í leikmannahópnum.

„Stundum þegar meiðsli koma upp þá skapast tækifæri og hann hefur tekið sitt,“ sagði Klopp.

Það kom mörgum á óvart að sjá Adrian sitja áfram á varmannabekknum þegar aðalmarkvörðurinn Alisson Becker meiddist. Jürgen Klopp vildi frekar setja óreyndan strák í markið.

„Adrian hefur staðið sig mjög vel hjá okkur en við þurftum betri fótboltamann í markið og það fengum við með Caoimhin Kelleher. Hann er líka góður að verja. Við tókum þessa ákvörðun en svo veit maður aldrei hvernig menn ráða við þetta. Ég er mjög ánægður með það hversu rólegur hann var og hversu góður hann var,“ sagði Klopp.

Klopp hrósaði líka bakverðinum Neco Williams sem hefur fengið á sig talsverða gagnrýni eftir að hann kom inn í liðið þegar landsliðsbakvörðurinn Trent Alexander-Arnold meiddist.

„Við teljum að hann eigi meira inni en hann hefur sýnt hingað til. Tímabilið byrjaði eftir erfitt sumar og stutt undirbúningstímabil og svo dettur Trent Alexander-Arnold út. Neco var ekki í sínu besta formi en hann er á stóra sviðinu núna og í kvöld sýndi hann okkur smá brot af því sem býr í honum. Hann getur enn orðið svo miklu betri,“ sagði Jürgen Klopp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×