Logi Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, segir umfjöllun hagsmunatengdra fjölmiðla um fjármál Kristrúnar Frostadóttur, oddvita Samfylkingarinnar í Reykjavík suður, vera „aðför að lýðræðinu“.
Kristrún svaraði ekki blaðamanni Viðskiptablaðsins sem vann frétt um hagnað hennar af kaupréttarsamningi þegar hún starfaði í Kviku banka, en hann er sagður hafa nálgast 100 milljónir króna. Kristrún brást síðan harkalega við umfjölluninni.
„Samantekin ráð virðast nú vera hjá MBL og Viðskiptablaðinu að gefast upp á að ræða um mína pólitík á efnislegum grunni og reyna nú bara að keyra konuna niður með smjörklípum, óhróðri, gera lítið úr jafnaðarmannaskoðunum mínum,“ sagði hún á Twitter.
Hæfileikarík kona þurfi að svara meiru
„Hefði ekki verið eðlilegast að koma strax fram og svara þessum spurningum,“ var Logi spurður í leiðtogaumræðum á RÚV í kvöld, „í stað þess að grípa til klækjustjórnmála og saka blaðamenn um undarlegar hvatir“?
„Mér finnst eiginlega alveg ótrúlegt að ung kona, hæfileikarík kona, sem hefur ótrúlega margt fram að færa í umræðunni núna fyrir kosningar, sé krafin af dagblöðum sérhagsmunaaflanna um að gefa meiri upplýsingar um sinn persónulegan fjárhag heldur en nokkur annar stjórnmálamaður hefur þurft að gera. Kristrún Frostadóttir hefur svarað og svarið hennar stendur. Samfylkingin er hins vegar vön þessu úr þessum áttum sem þetta kemur. Og við tökum þessu bara af æðruleysi.“
„Hræðsluáróður og atlaga að lýðræðinu“
Þegar Baldvin Þór Bergsson, fréttamaður RÚV, sagði að Samfylkingin hefði áður gagnrýnt ef eitthvað teldist „undarlegt í fjármálafortíð hjá öðrum stjórnmálaflokkum“, sagði Logi óboðlegt að hún þyrfti að gefa meiri upplýsingar en aðrir og ekki hafi verið um neitt misferli að ræða.
„Það er óboðlegt að hún sé krafin um meiri upplýsingar um sinn fjárhag, heldur en aðrir hérna við borðið.“
„Þessu var öllu svarað. Við höfum stigið fram þegar fólk hefur verið uppvíst að misferli. Hér var ekki um neitt slíkt að ræða. Ég endurtek, að það er óboðlegt að hún sé krafin um meiri upplýsingar um sinn fjárhag, heldur en aðrir hérna við borðið. Og ég vil kalla þetta næstum því einhvers konar hræðsluáróður og atlögu að lýðræði til þess að hræða ungt og hæfileikaríkt fólk frá því að taka þátt í stjórnmálum. Og ég tek ekki þátt í því og styð hana.“
Kristrún segir kaupréttarkerfið ekki sanngjarnt
Kristrún sagði í samtali við Stundina að hún teldi að fólk sem væri í þeirri stöðu að njóta kauprétta ætti að greiða meira til samfélagsins, enda fengju ekki allir sömu tækifæri. „Ég held að það sé mjög mikilvægt að einstaklingar sem eru í þessari stöðu séu meðvitaðir um það og séu þá tilbúnir að leggja meira til samfélagsins vegna þess að mjög eðlilega hugsar fólk þarna úti: Ég fékk ekki þessi tækifæri og ég get ekki ávaxtað mitt fé á sömu forsendum ...“
Þá sagði Kristrún kerfið ekki vera byggt upp með sanngjörnum hætti. „Þannig að ég get kannski ekki farið út í díteila um það en ég á ekkert erfitt með að fullyrða það að mér finnst ekki sanngjarnt hvernig kerfið er uppbyggt, það liggur alveg fyrir.“
Hún neitar að svara um hagnað sinn af kaupréttarsamningum og vill ekki ganga svo langt, í svörum sínum til Stundarinnar, að segja að hún muni beita sér gegn slíkum samningum, verði hún fjármálaráðherra.
Athugasemdir