Chelsea á toppinn

Abraham og Chilwell fagna síðara marki Chelsea.
Abraham og Chilwell fagna síðara marki Chelsea. Lindsey Parnaby/Getty Images

Chelsea er komið á toppinn í enska boltanum, um stundarsakir að minnsta kosti, eftir góðan 2-0 útisigur á Newcastle í fyrsta leik níundu umferðarinnar.

Leikurinn markaði upphaf enska boltans eftir landsleikjavikuna en Chelsea komst yfir á tíundu mínútu. Eftir hornspyrnu fór boltinn af Federico Fernandez og í eigið net. 1-0.

Þannig stóðu leikar í hálfleik en heimamenn í Newcastle fengu álitleg tækifæri til þess að jafna metin í upphafi síðari hálfleiks. Komu þeir þó boltanum ekki framhjá Edouard Mendy.

Það var svo Chelsea sem skoraði annað markið. Eftir laglega spilamennsku var það svo Tammy Abraham sem kom boltanum í netið eftir að Timo Werner lagði boltann á hann.

Timo Werner kom svo boltanum sjálfur í netið skömmu síðar en markið var dæmt af vegna rangstöðu. Ekki urðu mörkin fleiri og lokatölur 2-0 sigur Chelsea sem er á toppnum, með átján stig.

Tottenham getur þó komist upp fyrir Chelsea með sigri á Man. City á heimavelli í dag en Newcastle er í 13. sætinu með ellefu stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira