Ískalt á gosstöðvunum og ekki í sóttkví Kolbeinn Tumi Daðason og Kristín Ólafsdóttir skrifa 8. apríl 2021 17:31 Leila var í stígvélum en Usama í íþróttaskó. Tökumaður Stöðvar 2 benti þeim á að þau væru alltof illa klædd til að vera að fara í gönguna upp að gosstöðvum. Vísir/Egill Þau Leyla og Usama frá Marokkó voru mætt í gallabuxum og úlpu á Suðurstrandarveg í dag á leiðinni í fjallgöngu. Þau komu til landsins í gær en töldu sig ekki þurfa að vera í sóttkví sökum þess að þau hefðu farið í próf og sýnt vottorð við komuna til landsins. „
Já, við erum mjög spennt. Ég vona að okkur verði bara ekki of kalt,“ segir Leyla. „Við höfum lesið mikið um mögulega hættu og hve langan tíma tekur að ganga. Það virðist vera löng ganga en miðað við það sem við höfum heyrt er það þess virði,“ bætir Usama við. Þau segjast ekki hafa átt von á því að svo kalt yrði í veðri. Hjálmar Hallgrímsson lögreglumaður á Suðurnesjum varaði við ferðum á gosstöðvarnar í dag sökum kulda. Þær eru þó opnar almenningi. „Við erum í fötunum okkar og þetta verður reynsla,“ segir Leyla hlæjandi. Leyla segist hafa átt von á hita nær tíu stigum eða svo enda eru þau vön öllu hlýrra loftslagi. Þau komu til Íslands frá Maldíveyjum þar sem þau voru í fríi. Eftir dvölina á Íslandi fara þau aftur til Þýskalands þar sem þau eru búsett. Parið segist hafa lent fyrir tólf klukkustundum. Aðspurð hvort þau ættu ekki að vera í sóttkví voru þau fljót til svars, nei. Þau hefðu farið í próf og væru með gilt skírteini. Samkvæmt reglum á landamærum eiga allir þeir sem koma til landsins, nema viðkomandi framvísi bólusetningarvottorði eða vottorði um fyrri sýkingu, að fara í tvær skimanir og halda sóttkví í fimm daga á milli skimanna. Sú krafa verður áfram fyrir hendi í nýrri reglugerð ráðherra sem tekur gildi á miðnætti. Þá verður eftirlit með fólki í heimasóttkví aukið í samvinnu við lögreglu og sektir hækkaðar. Uppfært 9. apríl klukkan 08:35 Leyla segir í tölvupósti til fréttastofu að orð þeirra, sem sjá má í fréttinni að ofan, hafi verið misskilin. Þau séu læknar sem starfi í Þýskalandi og hafi bæði fengið Covid-19. Þau séu með vottorð upp á það sem þau hafi framvísað á Keflavíkurflugvelli. Fréttastofa bað um afrit af vottorðinu því til staðfestingar en Leyla vildi ekki verða við því og vísaði á landamæraeftirlitið á Keflavíkurflugvelli.
Eldgos í Fagradalsfjalli Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Ferðamennska á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Innlent Færeyingar áforma 4.500 króna aðgangseyri á alla ferðamenn Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Innlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Innlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fleiri fréttir Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Sjá meira