Óvissa hvert nemendur fara vegna myglunnar í Myllubakkaskóla Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. október 2021 13:47 Ekkert húsnæði rúmar alla 370 nemendur Myllubakkaskóla og því útlit fyrir að þeir fari tímabundið annað. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir að 370 nemendur í Myllubakkaskóla í Reykjanesbæ verði fluttir yfir í nokkur önnur húsnæði þegar umfangsmiklar framkvæmdir við að ráða bug á myglu í húsnæðinu hefjast. Bæði starfsfólk og nemendur hafa fundið fyrir einkennum vegna myglunnar.
Víkurfréttir greindu frá því í morgun að mygla hefði fundist í Myllubakkaskóla í Keflavík, elsta skóla Reykjanesbæjar og að lagfæringar hefðu ekki skilað árangri. Helgi Arnarson, fræðslustjóri Reykjanesbæjar, segir að farið verði í heildstæðar athuganir. „Við höfum verið að vinna í samstarfi við sérfræðinga í talsverðan tíma. Það hafa verið gerðar sjö athuganir á vegum Mannvits, sem við höfum leitað til, og lagfæringar á milli en það er þannig komið að þær hafa ekki skilað fullnægjandi árangri,” segir Helgi Arnarson, sviðsstjóri fræðslusviðs Reykjanesbæjar. Tengibygging skólans hefur verið innsigluð en að öðru leyti er allt annað húsnæði í notkun. Verið er að skoða hvort loka þurfi skólanum öllum. „Það er þegar farið af stað með það að skoða hvaða möguleikar eru í sveitarfélaginu okkar. Þar er verið að horfa til þess að sé hentugt húsnæði í nálægð við skólann og henti fyrir kennslu. Það eru þegar komnar nokkrar hugmyndir fram í þeim hópi en það á eftir að vinna það aðeins betur.” Það myndi hafa áhrif á alla 370, og 40 starfsmenn skólans. Helgi segir að ekkert húsnæði geti tekið á móti öllum þessum fjölda og því myndi kennsla fara fram á nokkrum stöðum. Nokkrir starfsmenn, meðal annars skólastjórinn, eru komnir í veikindaleyfi vegna myglunnar og nokkrir nemendur fundið fyrir einkennum. Helgi segir viðbúið að framkvæmdir verði umfangsmiklar. „Auðvitað er búið að lagfæra ýmislegt alltaf á milli en þetta greinist víða um skólann þannig að við erum á þeim stað núna að við sjáum fyrir okkur að þetta gætu orðið umtalsverðar framkvæmdir.” Uppfært: Í fyrstu var sagt að nemendur yrðu fluttir í aðra skóla, en hið rétta er að ekki liggur fyrir hvort nemendur verði fluttir í aðra skóla eða hvort fundið verði nýtt húsnæði sem verði nýtt tímabundið undir kennslu.
Reykjanesbær Skóla - og menntamál Grunnskólar Mygla Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Innlent Stutt í næsta gos komi til gosloka Innlent „Það er hart sótt að okkar fólki“ Innlent Úrskurðurinn felldur úr gildi Innlent Vilja endurupptöku í máli Weinstein Erlent Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Innlent Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Vill hinn almenna launamann á þing Innlent Sinueldur í Munaðarneslandi Innlent Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Innlent Fleiri fréttir Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Stutt í næsta gos komi til gosloka „Það er hart sótt að okkar fólki“ Nemendur Flóaskóla slá í gegn með Langspilin sín Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu Jarðhræringar á Reykjanesi, flug til Færeyja og verkalýðsdagurinn Úrskurðurinn felldur úr gildi Vill hinn almenna launamann á þing Sinueldur í Munaðarneslandi Íslensk stjórnvöld haldin „sjúkri undirgefni“ Barn á Akureyri greindist með kíghósta Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Beint: Hátíðarhöld á verkalýðsdaginn 2024 Sniglar hægja á umferð Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Verkalýðsbaráttan aldrei verið jafn mikilvæg Einkamálefni forsetaframbjóðanda, verkalýðsdagurinn og háskólamótmæli „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Arnór Sighvatsson settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Fallið frá ráðningarferli og Hermann fylgir Sigurði Inga Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Gamla stjarnan þótti ekki henta nútímakröfum Ekkert eftirlit með veðmálasíðum, landris við Svartsengi og milljónasektir fyrir eldislax Sjá meira