Janus skoraði 100. markið

Janus Daði Smárason er kominn með 100 mörk í landsleikjum.
Janus Daði Smárason er kominn með 100 mörk í landsleikjum. mbl.is/Kristinn Magnússon

Janus Daði Smárason skoraði sitt 100. mark fyrir A-landslið Íslands í handknattleik snemma í leiknum gegn Brasilíu á heimsmeistaramótinu í Gautaborg í dag.

Janus skoraði sitt annað mark í leiknum þegar hann minnkaði muninn í 6:5 á níundu mínútu leiksins og var þar með kominn í 100 mörkin. Þetta er hans 66. landsleikur.

Leikurinn hófst kl. 17 og er í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka