Byrjunarlið Íslands gegn Ungverjum

Elín Metta Jensen, Sveindís Jane Jónsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra …
Elín Metta Jensen, Sveindís Jane Jónsdóttir, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir eru allar í byrjunarliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta hefur opinberað byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Ungverjum sem hefst 14:30. Liðið er óbreytt frá 3:1-sigrinum á Slóvakíu síðastliðinn fimmtudag. 

Með sigri og hagstæðum úrslitum í öðrum leikjum tryggir Ísland sér sæti á lokamóti EM í dag, en íslenska liðið er í öðru sæti F-riðils með 16 stig. Ungverjaland er í 4. sæti með sjö stig. 

Markvörður: Sandra Sigurðardóttir

Vörn: Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, Glódís Perla Viggósdóttir, Ingibjörg Sigurðardóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir

Miðja: Agla María Albertsdóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Alexandra Jóhannsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir, Elín Metta Jensen

Sókn: Berglind Björg Þorvaldsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert