Thiago segir að leikmenn Liverpool séu enn að jafna sig eftir fernu-klúðrið í fyrra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. janúar 2023 13:31 Knattspyrnustjórinn Jürgen Klopp og Thiago Alcantara í skellinum á móti Brighton & Hove Albion á dögunum. Getty/ John Powell Stjörnumiðjumaður Liverpool heldur því fram að leikmenn Liverpool séu enn í sárum eftir að hafa misst af fernunni í fyrra.
Thiago ræddi stöðuna á Liverpool eftir markalausa jafnteflið á móti Chelsea í ensku úrvalsdeildinni um helgina. Liverpool spilaði 63 leiki á síðustu leiktíð þar sem liðið var aðeins tveimur leikjum frá því að vinna fernuna fyrst félaga. Liverpool vann enska bikarinn og enska deildarbikarinn en endaði í öðru sæti í ensku úrvalsdeildinni og tapaði síðan á móti Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Liverpool er núna í níunda sæti í deildinni tíu stigum á eftir Manchester United sem situr í fjórða og síðasta Meistaradeildarsætinu. Gengi Liverpool hefur ollið miklum vonbrigðum og menn eru ólíkir sjálfum sér inn á vellinum. „Við erum í góðri stöðu í Meistaradeildinni og í enska bikarnum. Við erum ekki í þeirri stöðu sem við viljum vera í ensku deildinni en við eigum samt enn möguleika á að bæta úr því,“ sagði Thiago. „Núna er staðan bara þannig að við verðum að taka leik fyrir leik. Við verðum að reyna að ná í þrjú stig og hækka okkur í töflunni eins mikið og við getum. Markmiðið okkar er næsti leikur,“ sagði Thiago. „Núna snýst þetta ekki um að komast í topp fjögur eða vera í Evrópudeildinni. Við verðum bara að hugsa um næsta leik. Við verðum að standa saman sem eitt lið. Ekki bara á góðu stundunum heldur á þeim slæmu líka,“ sagði Thiago. „Það er enginn vafi að síðasta tímabil hafði áhrif á okkur. Ekki aðeins líkamlega heldur einnig andlega líka. Við vorum svo nálægt því að vinna allt saman. Við komust í tæri við það en misstum það síðan frá okkur,“ sagði Thiago. „Síðasta tímabil bar eitt það besta hjá mér á ævinni. Þetta tímabil er ekki eitt af þeim bestu en það skiptir ekki máli. Þetta er tímabil og það er alltaf áskorun,“ sagði Thiago. „Ég tek að við höfum frábær gæði og frábæra gæja til að vinna okkur út úr þessu og við munum gera það,“ sagði Thiago.
Enski boltinn Mest lesið Aðalsteinsdóttir nafnið á nýrri æfingu Sport Metamfetamín fannst í báðum sýnum markmannsins Handbolti Di María ákveðinn að snúa ekki aftur heim eftir morðhótanir Fótbolti Gunnar um að mæta dóttur sinni: „Hélt langmest með henni af öllum inn á vellinum“ Sport „Of mörg tilfelli sem hafa komið upp“ Körfubolti Kalla eftir því að brjóstahaldararnir séu teknir alvarlega Sport Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Enski boltinn „Sumir eru bara asnar og láta eins og fávitar“ Sport Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti „Við vorum bara ekki á svæðinu“ Handbolti Fleiri fréttir Tonali braut veðmálareglur fimmtíu sinnum eftir komuna til Newcastle Möguleikar Tottenham á Meistaradeildarsæti að fjara út „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti
Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 39-25 | Valsmenn jafna einvígið með stórsigri Handbolti