Aníta og Óskar taka við Fram

Óskar Smári Haraldsson og Aníta Lísa Svansdóttir við undirskriftina í …
Óskar Smári Haraldsson og Aníta Lísa Svansdóttir við undirskriftina í dag. Ljósmynd/Fram

Knattspyrnudeild Fram hefur ráðið Anítu Lísu Svansdóttur og Óskar Smára Haraldsson sem þjálfara meistaraflokks kvenna til næstu tveggja ára.  

Aníta Lísa var síðast aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá KR ásamt því að gegna stöðu yfirþjálfara yngri flokka og þjálfa 2., 3. og 4. flokk kvenna. Hún var áður aðstoðarþjálfari meistaraflokks ÍA og yngri flokka þjálfari.

Óskar Smári var annar aðalþjálfara Tindastóls í úrvalsdeild kvenna á síðustu leiktíð. Hann var áður aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Stjörnunni og þjálfaði 2. og 3. flokk kvenna hjá félaginu.

Samhliða þjálfun meistaraflokks munu Aníta og Óskar sjá um þjálfun 4. flokks kvenna og koma að áframhaldandi uppbyggingu kvennaknattspyrnu innan félagsins. Kvennalið Fram leikur í 2. deild.

„Knattspyrnudeild Fram fagnar komu Anítu Lísu og Óskars Smára til félagsins og hlakkar til að fylgjast með frekari framþróun kvennaknattspyrnunnar undir þeirra leiðsögn,“ segir í tilkynningu frá knattspyrnudeild Fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert