Skýrsla Henrys: Eitt stærsta íþróttaafrek Íslandssögunnar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 22. janúar 2022 20:46 Strákarnir okkar fagna ógurlega eftir leik í kvöld. vísir/getty Við skulum bara viðurkenna það. Við áttum öll von á franskri flengingu í kvöld. Skiljanlega reyndar miðað við áföllin hjá strákunum okkar. Lærdómur kvöldsins er að afskrifa ALDREI strákana okkar. Sama hver spilar.
Það eru átta lykilleikmenn fjarverandi. Það á eiginlega ekki að vera hægt að vinna Ólympíumeistara Frakka með þennan leikmannahóp. En svona eru íþróttirnar yndislegar. Á endanum fengu Frakkarnir flengingu. Þá stærstu í EM-sögu þeirra. Þetta er án nokkurs vafa eitt stærsta íþróttaafrek Íslandssögunnar! Þetta leikplan sem Guðmundur Guðmundsson hefur sett upp er ótrúlegt og verður líklega geymt á safni í framtíðinni. Það er alveg sama hver spilar. Allir blómstra. Ég er nánast farinn að trúa því að það myndi ganga upp með mig á vellinum. Þetta er það skothelt plan. Hver er þessi Ómar Ingi? sagði fólk og gerði grín að vali á íþróttamanni ársins um áramótin. Í kvöld vita allir hver hann er og af hverju hann var verðskuldað kjörinn íþróttamaður ársins. Fyrstu 30 mínútur leiksins hjá honum voru einhverjar bestu 30 mínútur landsliðsmanns frá upphafi. Átta mörk, þrjár stoðsendingar og gerði látlaust grín að stórkostlegum varnarmönnum Frakka sem vissu ekki í hvorn fótinn þeir áttu að stíga. Drengurinn er algjörlega ótrúlegur. Þetta var svo sannarlega kvöld örvhentra því Viggó Kristjánsson var einnig stórkostlegur. Tók seinni hálfleikinn yfir og fullkomnaði niðurlægingu Frakka er hann „greiddi“ franska markverðinum. Unun á að horfa. Svo fæddist stjarna í líki Viktors Gísla Hallgrímssonar. Eftir að hafa ekki getað neitt gegn Dönum mætti hann á dúkinn í kvöld og át Frakkana. 43 prósent varsla og þvílíkir boltar. Þetta er alvöru karakter. Talandi um karaktera. Eyjamaðurinn Elliði Snær Viðarsson er algjörlega dásamlegur. Mætti bara og skilaði níu stoppum, tveimur stolnum, einu vörðu skoti og fjórum skoruðum mörkum á milli þess sem hann pirraði Frakkana látlaust. Það er svo gaman að sjá pirraða Frakka. Þvílíkur meistari. Frábær með Ými í vörninni og mikið djöfull held ég að það sé leiðinlegt að spila á móti þeim. Í dag eru nákvæmlega 15 ár frá líklega best spilaða leik landsliðsins frá upphafi. Hann var gegn Frökkum í Bördelandhalle í Magdeburg. Þar var allt undir og Ísland brilleraði. Ég var í Magdeburg þetta fræga kvöld árið 2007 og það var ógleymanleg stund. Þar var öll höllin að styðja Ísland þar sem Alfreð Gíslason er kóngurinn i borginni og þeir Ólafur Stefánsson, Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason höfðu allir spilað með liðinu. Í Búdapest í kvöld gerðist svipaður hlutur því áhorfendur gátu ekki annað en dáðst að íslenska liðinu og hvatt það. Við eyðilögðum veislu Ungverjanna en meira að segja þeir hvöttu íslenska liðið til dáða. Íslensku áhorfendurnir voru frábærir, þó fáir séu eftir, og náðu höllinni með sér. Það var ítrekuð gæsahúð að sitja þarna og fylgjast með stemningunni sem var öll með Íslandi. Þetta kvöld í Búdapest er eitt af þessum handboltakvöldum sem íslenska þjóðin mun aldrei gleyma. Rétt eins og leiknum 2007 og leiknum við Spánverja á ÓL 2008. Í kvöld var skrifaður stór og merkur kafli í íslenska handboltasögu. Það voru forréttindi að verða að vitni að þessu. Þarf Icelandair ekki að athuga að henda í aðra Covid-ferð á EM? Það er nefnilega eitthvað í loftinu.
EM karla í handbolta 2022 Mest lesið Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Íslenski boltinn Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Gamlar hetjur taka fram skóna í bikarnum í dag Íslenski boltinn „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Dagskráin í dag: Oddaleikur og nýliðaval Sport Fleiri fréttir „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg „Það er ekkert plan B“ Ungir strákar þarna úti sem gætu spilað á HM á Íslandi „Ég hefði bara átt að taka leikhlé“ Uppgjör, viðtöl og myndir: Fram - Haukar 23-27 | Gestirnir sterkari undir lokin Íslandsmeistararnir byrja undanúrslitaeinvígið á sigri Teitur Örn öflugur og Flensburg í góðri stöðu Árs bann fyrir árás á eftirlitsmann og þjálfarinn fékk líka bann Carlos tekur við Selfossi: „Hann er algjör handboltaheili“ Aue ævintýri Óla Stef tekur enda eftir tímabilið „Mun stærri sigur en ég bjóst við“ Umfjöllun: Valur - Minaur Baia Mare 36-28 | Fara út með átta marka forskot „Hefðum þegið betri markvörslu“ „Höfðum stjórn á leiknum allan tímann“ Uppgjörið: FH - ÍBV 36-31 | FH komið í forystu í einvíginu við ÍBV Óðinn með 9 mörk þegar Kadetten tók forystuna í einvíginu „Við erum góðir og þeir eru góðir“ Aldís Ásta atkvæðamikil þegar Skara jafnaði einvígið Zwickau sogast niður í fallbaráttu Orri Freyr fór mikinn í stórsigri Sporting Fredericia missti toppsætið til Skjern Haukur og félagar byrja undanúrslitin vel Þýðir ekki að mæta með hangandi haus: „Það er ekkert bull“ „Hef enga trú á því að Þjóðarhöll verði risin árið 2031“ Fjórtán íslensk mörk og Magdeburg á toppinn Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Sjá meira