Innlent

For­seta­hjónin á leið í opin­bera heim­sókn til fæðingar­lands Elizu

Atli Ísleifsson skrifar
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú.
Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú. Vísir/Vilhelm

Guðni Th. Jóhannesson forseti og Eliza Reid forsetafrú halda í opinbera heimsókn til Kanada 29. maí og verða til 1. júní. Þau verða þar í boði landstjórans Mary Simon. Um er að ræða fyrstu ríkisheimsókn Íslands til Kanada frá árinu 2000, en meðal annars verður fundað með Justin Trudeau forsætisráðherra.

Í tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að markmið heimsóknarinnar sé að styrkja enn frekar hin margþættu tengsl landanna sem hafi fagnað 75 ára afmæli stjórnmálasambands á síðasta ári.

„Með forsetahjónum í för verður sendinefnd skipuð Lilju Alfreðsdóttur, viðskipta- og menningarmálaráðherra, Pétri Þ. Óskarssyni, framkvæmdastjóra Íslandsstofu, Jóni Sigfússyni, stjórnarformanni Planet Youth og Jóhönnu Vigdísi Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms, auk Hlyns Guðjónssonar sendiherra Íslands í Kanada. Þá fylgir forseta fjöldi fulltrúa úr viðskiptalífinu* sem hyggjast efla samstarf við Kanada, m.a. á sviði nýsköpunar í sjávarútvegi, heilsutækni og við nýtingu grænnar orku.

Heimsóknin hefst að morgni mánudagsins 29. maí með formlegri móttökuathöfn í höfuðborginni Ottawa sem er fæðingarstaður Elizu Reid forsetafrúar. Þar verður fundað með Mary Simon landstjóra og Justin Trudeau forsætisráðherra. Jafnframt verður þar efnt til tveggja funda um sameiginleg hagsmunamál Íslands og Kanada. Á þeim fyrri verður fjallað um varðveislu tungumáls í fámennum málsamfélögum og kynntar aðferðir í notkun máltæknilausna á íslensku. Á síðari fundinum verður sjónum beint að lýðheilsu ungmenna og munu fulltrúar frá Planet Youth á Íslandi ræða við kanadísk heilbrigðismálayfirvöld (Public Health Agency of Canada) um íslenska forvarnarmódelið sem innleitt hefur verið víða um lönd, þar á meðal í Kanada, undir merkjum Planet Youth.

Í Ottawa er einnig boðið til bókmenntaviðburðarins „Sögur úr norðri“þar sem rithöfundarnir Eliza Reid forsetafrú og Whit Fraser, eiginmaður landstjóra Kanada, ræða við kanadíska rithöfunda um bókmenntaarf þjóðanna.

Frá Ottawa halda forsetahjónin ásamt sendinefndum til Halifax í Nova Scotia og til St. John’s á Nýfundnalandi og Labrador. Þau munu eiga fundi með fylkisstjórum og ráðherrum auk þess sem efnt verður til fjölda viðburða í því skyni að efla menningar- og viðskiptatengsl Íslands og Kanada.

Heimsókninni lýkur í Toronto þar sem forsetahjón eiga fund með fylkisstjóra Ontario. Þá býður Íslandsstofa til íslensks markaðsdags þar sem leiddir eru saman kanadískir fjárfestar og fulltrúar íslensks viðskiptalífs, og mun forseti ávarpa gestina.

Ríkisheimsókn forseta Íslands og forsetafrúar til Kanada lýkur að kvöldi fimmtudagsins 1. júní,“ segir um heimsóknina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×