Nýrri EM auglýsingu N1 ætlað að hvetja ungt fólk til dáða N1 24. júní 2022 09:34 Glódís Perla Viggósdóttir og Heiðdís Björt Bernhardsdóttir við tökur en Heiðdís fer með hlutverk Glódísar sem ungrar fótboltastelpu með stóra drauma. Ný auglýsing N1, sem gerð er í tilefni af EM kvenna 2022, var frumsýnd í gær og var auglýsingunni leikstýrt af Hannesi Þór Halldórssyni. Glódís Perla Viggósdóttir, leikmaður Bayern Munchen og íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, er í aðalhlutverki í auglýsingunni, ásamt Heiðdísi Björt Bernhardsdóttur. Markmið auglýsingarinnar er einna helst að hvetja unga krakka til að elta draumana sína.
Að sögn Glódísar Perlu sýnir auglýsingin þær áskoranir sem hún sjálf þurfti að yfirstíga sem ung fótboltastelpa í HK og til dagsins í dag, en hún spilar nú með stórliðinu Bayern Munchen í Þýskalandi. „Ég vona að þessi auglýsing sé hvatning fyrir unga krakka, og stelpur sérstaklega, því það er mikið af tækifærum í boði úti í hinum stóra heimi. Það þarf að byrja á því að setja sér skýr markmið, leggja á sig vinnuna og þá fyrst er hægt að ná þeim markmiðum og upplifa drauma sína. Það þýðir lítið að gefast upp í fyrsta skipti sem eitthvað gengur ekki upp eða þegar eitthvað gengur á afturfótunum og í staðinn reyna að finna nýjar leiðir til að komast á áfangastaðinn,“ segir Glódís um þátttöku sína í auglýsingunni. Leikstjórinn og fyrrum landsliðsmaðurinn Hannes Þór Halldórsson þekkir vel þær áskoranir sem fylgja því að ná settum markmiðum og láta drauma sína rætast. „Verkefnið sem N1 treysti mér fyrir, stendur mér nærri og var mjög auðvelt að tengja við. Ég tók margt úr mínum reynsluheimi sem endaði í auglýsingunni, eins og það að setja sér markmið, hafa þau sýnileg upp á vegg og leggja mikið á sig til að ná þeim. Ég vonast til að skilaboð auglýsingarinnar nýtist ungu íþróttafólki sem hefur háleit markmið og vill ná langt í sinni íþrótt,“ segir Hannes. Hér má sjá bak við tjöldin við gerð auglýsingarinnar: N1 hefur um árabil verið einn helsti stuðningsaðili grasrótarstarfs íslenskrar knattspyrnu, ekki aðeins í gegnum N1 mótið sem haldið hefur verið í áratugi á Akureyri, heldur einnig með Hæfileikamótun N1 og KSÍ. Þar fá efnilegir leikmenn af báðum kynjum hvaðanæva af landinu tækifæri til að takast á við hvern annan á krefjandi æfingum og á sama tíma stíga sín fyrstu skrefin í átt að sæti í landsliðum Íslands.
Fótbolti Heilsa Krakkar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Svo hefst kapphlaupið í það hver er fyrstur að ná sturtunni!“ Atvinnulíf Hnífjöfn atkvæðagreiðsla sem gæti endað fyrir dómi Viðskipti innlent Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Viðskipti Segir arðgreiðslur ÁTVR hafa lækkað um 400 milljónir vegna netsölu Viðskipti innlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Rauf sátt vegna Max-málsins og gæti átt yfir höfði sér refsimál Viðskipti erlent Krökkunum finnst hálf hallærislegt að mamman kunni Friends þættina utan að Atvinnulíf Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Greiðsluáskorun VÍS gefið yfir 1.100 fjölskyldum barnabílspegla í sængurgjöf Hraðhleðslur spretta upp sem gorkúlur - tvær opna á Þórshöfn Nýjung í bílaviðskiptum á netinu – Bland og Frágangur í samstarf Polestar 4 kominn í Polestar Reykjavík – umhverfisvænasti bíll Polestar Einstakt tækifæri til að sjá einn merkasta sportbíl sögunna - Porsche 911 Dakar Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2024 - kosning Kolefnasporlausir bílar fyrir 2030? Polestar er með plan Neytendur kunna að meta Landlaxinn og Landbleikjuna Dýrmætustu og sjaldgæfustu Mustang bílar landsins á afmælissýningu Mustang Tölum um neytendamál! Mættu tímanlega í pallaráðgjöf hjá BYKO Bíllinn leggur meðan ég fæ mér drykk - smart #3 reynsluakstur GreenCoat er umhverfisvænasta litaða stálklæðningin sem völ er á Nú er hægt að elta góða veðrið um landið með kortavef Já.is Einblína á trausta ávöxtun til langs tíma Fjölbreytt vöruúrval og ein bestu verð hérlendis Toyota sýnir úrvals fyrirtækjabíla á Verk og vit Nýr Toyota Yaris Hybrid frumsýndur á laugardag Leið eins og stjórnanda geimskips Hver verður iðnaðarmaður ársins 2024? Sjá meira