Einn slasaður eftir vélsleðaslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi við Akureyri í dag.
Þyrla Landhelgisgæslunnar á flugi við Akureyri í dag. mbl.is/Þorgeir

Lögreglan á Norðurlandi eystra fékk tilkynningu um vélsleðaslys á Tröllaskaga nálægt Lágheiði kl. 13:24 í dag. Þar væri um einn slasaðan mann að ræða. Viðbragðsaðilar á svæðinu voru ræstir út sem og þyrla Landhelgisgæslunnar. 

Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að aðgerðarstjórn hafi verið virkjuð á Akureyri.

Um klukkustund síðar voru sjúkraflutninga- , björgunarsveitar- og lögreglumenn komnir á vettvang. Þyrla LHG kom skömmu síðar og var hinn slasaði hífður upp í hana og flaug hún með hann á Sjúkrahúsið á Akureyri. 

Hópur vélsleðamanna mun hafa verið þarna saman á ferð en ekki er vitað hvernig slysið bar .     

Þegar mbl.is hafði samband við Slökkviliðið á Akureyri fengust þær upplýsingar   slasaði væri ekki lífshættulega slasaður. 

Klukkan 13:24 fékk lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynningu um vélsleðaslys Tröllaskaga nálægt Lágheiði og væri um...

Posted by Lögreglan á Norðurlandi eystra on Föstudagur, 15. janúar 2021

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert