Serbinn Nikola Jokic átti stórleik fyrir Denver Nuggets þegar liðið vann 114:104-heimasigur gegn Golden State Warriors í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.
Jokic var með þrefalda tvennu, skoraði 23 stig, tók fjórtán fráköst og gaf tíu stoðsendingar, en Denver leiddi með ellefu stigum í hálfleik, 65:54.
Denver jók forysu sína í fjórtán stig í þriðja leikhluta og Golden State tókst ekki að svara í þeim fjórða.
Stephen Curry átti frábæran leik fyrir Golden State, skoraði 35 stig og tók ellefu fráköst en það dugði ekki til.
Denver er í sjöunda sæti Vesturdeildarinnar með sex sigra og sex töp en Golden State er í níunda sætinu, einnig með sex sigra og sex töp.
Úrslit næturinnar í NBA:
Philadelphia 76ers 125:108 Miami Heat
San Antonio Spurs 105:109 Houston Rockets
Toronto Raptors 111:108 Charlotte Hornets
Denver Nuggets 114:104 Golden State Warriors
Portland Trail Blazers 87:111 Indiana Pacers