Tugir í lífstíðarfangelsi vegna valdaránstilraunarinnar 2016 Atli Ísleifsson skrifar 7. apríl 2021 14:28 Öryggisgæsla var mikil fyrir utan dómshúsið í Sincan, skammt frá Ankara, í morgun. AP/Burhan Ozbilici Dómstóll í Tyrklandi dæmdi í dag tugi manna í lífstíðarfangelsi vegna aðildar þeirra að hinni misheppnuðu valdaránstilraun sem beindist gegn stjórn Receps Tayyip Erdogan forseta árið 2016. Í hópi hinna dæmdu eru meðal annars fyrrverandi hermenn í lífvarðarsveit forsetans.
AP segir frá því að frá árinu 2017 hafi verið réttað yfir rétt tæplega fimm hundruð manns vegna tilraunarinnar til að söðla undir sig höfuðstöðvar hersins í höfuðborginni Ankara og ríkisútvarpsins TRT, sem og fyrir að neyða sjónvarpsmann til að lesa yfirlýsingu valdaránsmannanna. Réttað hefur verið yfir mönnum sem sakaðir eru um að tengjast klerkinum Fethullah Gülen sem hefur um árabil verið í sjálfskipaðri sóttkví í Bandaríkjunum og Tyrklandsstjórn sakar um að vera höfuðpaur valdaránsmannanna. Gülen hefur alla tíð hafnað ásökunum tyrkneskra yfirvalda. Lífstíðarfangelsi og engin reynslulausn Dómari dæmdi í dag 32 í lífstíðarfangelsi og þar af fengu sex hörðustu refsingu sem tyrkneskt réttarfar býður upp á, það er lífstíðarfangelsi án möguleika á reynslulausn. Í hópi þeirra er fyrrverandi undirofusti sem neyddi fréttamann til að lesa yfirlýsingu valdaránsmannanna í sjónvarpi, fyrrverandi ofursti sem sakaður var um að hafa stýrt aðgerðunum sem sneru að söðla undir sig ríkisfjölmiðlinum TRT og svo fyrrverandi háttsettur liðsforingi í hernum sem var sagður hafa leitt aðgerðir til að leggja undir sig höfuðstöðvar tyrkneska hersins. Þá var einn dæmdur í 61 árs fangelsi og þá voru 106 dæmdir í á bilinu sex til sextán ára fangelsi. Þá voru nokkrir sýknaðir og enn aðrir voru sakfelldir en ekki dæmdir til fangelsisvistar. Á þriðja hundrað létu lífið Valdaránstilraunin átti sér stað 15. júlí 2015 þegar hópar úr tyrkneska hernum notuðust við skriðdreka, orrustuþotur og þyrlur í tilraun sinni til að steypa stjórn Erdogan. Var sprengt meðal annars við tyrkneska þinghúsið og á nokkrum stöðum í tyrknesku höfuðborginni. Alls lét 251 maður lífið og á þriðja þúsund særðist í götumótmælum dagana á eftir og þá voru 35 meintir þátttakendur í vandaránstilrauninni drepnir.
Tyrkland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira