Lýsir innrásinni í Úkraínu sem „deilu um landsvæði“ Kjartan Kjartansson skrifar 14. mars 2023 19:58 Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, nálgast nú að lýsa yfir framboði til forseta. Hann þarf nú í fyrsta skipti að svara erfiðum spurningum um sýn sína á utanríkismál, þar á meðal um afstöðu sína til innrásar Rússa í Úkraínu. Vísir/Getty Helsti áskorandi Donalds Trump um að verða forsetaefni Repúblikanaflokksins á næsta ári lýsir innrás Rússa í Úkraínu sem deilu um landsvæði. Hann telur það ekki brýna hagsmuni Bandaríkjanna að verja Úkraínu.
Skoðanakannanir benda til þess að Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, sé líklegastur til þess að veita Trump keppni um útnefningu repúblikana fyrir forsetakosningarnar sem fara fram í nóvember árið 2024. DeSantis hefur enn ekki lýst formlega yfir framboði en fastlega er gert ráð fyrir að hann geri það á næstunni. Fram að þessu hefur DeSantis vikið sér undan að úttala sig um utanríkismál, þar á meðal innrás Rússa í Úkraínu. Hann svaraði þó spurningum um málefnið í fyrsta skipti með afgerandi hætti í þætti Tuckers Carlson, helsta þáttastjórnanda Fox News-sjónvarpsstöðvarinnar, í gær. Carlson er sjálfur andstæðingur þess að Bandaríkin leggi Úkraínumönnum lið. „Þó að Bandaríkin hafi mörg brýn þjóðaröryggishagsmunamál [...] þá er það ekki eitt af þeim að blanda okkur frekar í deilu Úkraínu og Rússlands um landsvæði,“ sagði í skriflegu svari DeSantis við spurningum Carlson, að því er kemur fram í frétt Washington Post. Endurspeglar klofning innan Repúblikanaflokksins Skoðun DeSantis endurómar þá sem Trump hefur þegar lýst. Trump sagði það ekki hagsmuni Bandaríkjanna að stöðva Rússa í sínum svörum til Carlsons. Hann hefur áður sagt að hann leyfði Rússum að sölsa undir sig úkraínskt landsvæði ef samið yrði um frið. Í forsetatíð sinni var Trump kærður fyrir embættisbrot þegar hann reyndi að þröngva Volodýmýr Selenskíj, forseta Úkraínu, til þess að hjálpa sér að koma óorði á Joe Biden. Það gerði hann með því að stöðva tímabundið hernaðaraðstoð sem Bandaríkjaþing hafði þegar samþykkt. Afstaða bæði DeSantis og Trump er í andstöðu við leiðtoga Repúblikanaflokksins á Bandaríkjaþingi. Mitch McConnell, leiðtogi flokksins í öldungadeildinni, sagði nýlega að fullvalda Úkraína væri þjóðaröryggismál fyrir Bandaríkin. Ágreiningurinn þykir endurspegla vaxandi klofning innan raða Repúblikanaflokksins, á milli hefðbundinna íhaldsmanna sem eru andsnúnir rússneskum hernaðarumsvifum annars vegar og hins vegar nýrrar kynslóðar þingmanna yst á hægri jaðri flokksins sem eru andsnúnir úkraínskum stjórnvöldum og dást jafnvel að Vladímír Pútín Rússlandsforseta. DeSantis er talinn líklegastur til þess að velgja Donald Trump undir uggum í forvali Repúblikanaflokksins. Þeir virðast aðhyllast sömu stefnu í garð Úkraínu.Vísir/Getty Eins og ef Bandaríkin réðust inn í Kanada Sumir þingmenn repúblikana gagnrýndu þó DeSantis fyrir að lýsa innrásinni sem einhvers konar landamæradeilu í dag, þar á meðal Marco Rubio, öldungadeildarþingmaður flokksins frá Flórída og varaformaður leyniþjónustunefndar þingdeildarinnar.. „Þetta er ekki frekar deila um landsvæði en ef Bandaríkin ákvæðu að þau vildu ráðast inn í Kanada eða taka yfir Bahamaeyjar. Þetta er innrás,“ sagði Rubio í útvarpsviðtali. Í sama streng tók Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður frá Suður-Karólínu og dyggur stuðningsmaður Trumps. Sagði hann margt hafa farið fram hjá flokkssystkinum sínum ef þau teldu að tilefnislausa og villimannslega innrás Rússa í Úkraínu ekki þjóðaröryggismál Bandaríkjanna.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Innrás Rússa í Úkraínu Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira