Forseti Póllands smitaður af kórónuveirunni Kjartan Kjartansson skrifar 24. október 2020 08:12 Duda forseti er 48 ára gamall. Talsmaður hans segir honum líða vel í einangrun. AP/Beata Zawrzal
Andrzej Duda, forseti Póllands, er smitaður af nýju afbrigði kórónuveirunnar. Talsmaður forsetans segir honum líða vel en að hann sé nú kominn í einangrun. Mikil fjölgun hefur orðið í nýjum kórónuveirusmitum og dauðsföllum í landinu upp á síðkastið. Sýni sem var tekið úr Duda í gær greindist jákvætt. Fyrr um daginn hafði hann meðal annars heimsótt þjóðarleikvanginn í Varsjá sem verið er að breyta í bráðabirgðasjúkrahús og hitt Iga Swiatek, nítján ára gamlan pólskan tennisleikmann sem vann Opna franska mótið fyrr í þessum mánuði, að sögn AP-fréttastofunnar. Faraldurinn var ekki eins skæður í Póllandi í vor og víða annars staðar í Evrópu. Verulegur uppgangur er hins vegar í faraldrinum nú. Í gær var slegið met þegar 13.600 manns greindust smitaðir á einum degi og 153 létu lífið. Alls hafa nú fleiri en 4.170 látið af völdum faraldursins í Póllandi. Álag á heilbrigðiskerfi landsins fer ört vaxandi. Læknar segja að sjúklingar deyi nú ekki aðeins af völdum Covid-19 heldur úr öðrum kvillum sem sjúkrahús ná ekki að sinna sem skyldi. Ríkisstjórnin reynir nú að opna bráðabirgðasjúkrahús líkt og í Varsjá en hefur ekki enn tekist að finna lækna og hjúkrunarfræðinga til þess að manna þau. Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra, hvatti landa sína til þess að virða sóttvarnareglur til þess að bjarga mannslífum.
Pólland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Segir viðmælendur sitja undir hótunum netaktívista Innlent Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Erlent Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Erlent Fleiri fréttir Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Sjá meira