Ríkissaksóknari og verjendur sammála að annmarkar hafi verið á dómi Landsréttar Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 24. janúar 2023 12:01 Geir Gestsson, verjandi Murats, segir mikilvægt að Hæstiréttur taki Rauðagerðismálið fyrirenda ýmis álitaefni sem þurfi að sker úr um. Vísir/Vilhelm Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Lögmaður eins sakborninganna fagnar ákvörðun Hæstaréttar og mikilvægt að Hæstiréttur skoði þá annmarka sem voru á dómi Landsréttar.
Angjelin Sterkaj var dæmdur í sextán ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa banað Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði í febrúar 2021. Hinir þrír sakborningarnir, þau Claudia Carvalho, Shpetim Qerimi og Murat Selivrada voru öll sýknuð en Landsréttur sneri við dómnum og dæmdi öll þrjú í fjórtán ára fangelsi fyrir samverknað auk þess að þyngja dóminn yfir Angjelin í tuttugu ár. Öll fjögur óskuðu eftir leyfi til að áfrýja til Landsréttar og skilaði Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari áliti sínu á beiðnunum í desembermánuði. Fram kemur í álitinu að hugsanlega hafi skort lagaheimild til að þyngja dóm Angjelins. Þá væri mikilvægt að Hæstiréttur skoðaði skilyrði um samverknað í málinu annars vegar og hlutdeild hins vegar. „Ég held að það sé alveg ljóst að ríkissaksóknari og verjendur þessa fólks séu sammála um það að það hafi verið annmarkar á þessum dómi Landsréttar sem þurfi að fá skoðun fyrir Hæstarétti Íslands og nú er komið samþykki fyrir því að málið fari fyrir Hæstarétt þannig að þetta verður eitthvað mjög áhugavert held ég,“ segir Geir Gestsson, verjandi Murats. Landréttur hafi dæmt öll fjögur sem aðalmenn í málinu, þó það liggi fyrir hver tók í gikkinn, sem Hæstiréttur verði að endurskoða. „Þau fá þarna öll fjórtán ár þessir meintu samverkamenn og ef þau eru bara hlutdeildarmenn en ekki aðalmenn ætti það að leiða til að refsingin minnki,“ segir Geir. Málið hefur ekki verið sett á dagskrá hæstaréttar. „En það má gera ráð fyrir að .etta gerist svolítið hratt, verði kannski nokkrir mánuðir.“
Dómsmál Morð í Rauðagerði Tengdar fréttir Morðið í Rauðagerði verður tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu. 23. janúar 2023 14:54 „Þetta veldur auðvitað áhyggjum“ Ríkissaksóknari telur mögulegt að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Verjandi eins sakborninga í málinu segir það áhyggjuefni, hafi áfrýjunardómstóllinn Landsréttur farið út fyrir refsirammann með þessum hætti. 10. janúar 2023 11:45 Vafi leikur á um hvort Landsréttur hafi mátt þyngja refsingu Angjelin Ríkissaksóknari telur möguleika á því að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Mikilvægt sé að Hæstiréttur taki málið til skoðunar. 10. janúar 2023 09:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Fleiri fréttir Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Sjá meira
Morðið í Rauðagerði verður tekið fyrir í Hæstarétti Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Þetta herma heimildir fréttastofu. 23. janúar 2023 14:54
„Þetta veldur auðvitað áhyggjum“ Ríkissaksóknari telur mögulegt að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Verjandi eins sakborninga í málinu segir það áhyggjuefni, hafi áfrýjunardómstóllinn Landsréttur farið út fyrir refsirammann með þessum hætti. 10. janúar 2023 11:45
Vafi leikur á um hvort Landsréttur hafi mátt þyngja refsingu Angjelin Ríkissaksóknari telur möguleika á því að Landsrétt hafi skort lagaheimild til að þyngja refsingu Angjelin Sterkaj í Rauðagerðismálinu. Mikilvægt sé að Hæstiréttur taki málið til skoðunar. 10. janúar 2023 09:59