Stóreignir bendlaðar við Pútín virðast reknar í „samvinnufélagi“ Kjartan Kjartansson skrifar 21. júní 2022 11:23 Pútín hefur alla tíð svarið af sér sveitasetur og snekkjur sem bendlaðar hafa verið við hann. Allar þær helstu tengjast í gegnum leynilegt tölvupóstlén. Vísir/EPA Vísbendingar eru um að hallir, snekkjur og vínekrur sem bendlaðar hafa verið við Vladímír Pútín Rússlandsforseta tengist innbyrðis og að þær séu jafnvel reknar í einhvers konar óformlegu samvinnufélagi. Verðmæti eignanna er metið á meira en 590 milljarða íslenskra króna.
Lengi hafa verið ásakanir á lofti um að vinir Pútín úr ólígarkastétt sjái honum fyrir alls kyns eignum svo að forsetinn geti lifað í vellystingum án þess að þær verði raktar beint til hans. Pútín hefur jafnvel verið talinn einn auðugasti maður heims vegna þessarar auðsöfnunar hans. Erfitt hefur þó reynst að sanna tengsl hans við eignirnar þar sem vinir hans hafa stigið fram fyrir skjöldu og sagst eiga þær. Eignirnar eru skráðar á ólíka einstaklinga, fyrirtæki og góðgerðafélög. Samkvæmt opinberum gögnum í Rússland á Pútín sjálfur takmarkaðar eignir: litla íbúð í Pétursborg, tvo sovéska bíla frá 6. áratugnum, hjólhýsi og lítinn bílskúr. Samtök rannsóknarblaðamanna sem kanna skipulagða glæpastarfsemi og spillingu (OCCRP) hafa nú afhjúpað tengsl á milli eignanna sem eiga að nafninu til að vera ótengdar. Þær tengjast með sameiginlegu tölvupóstléni, LLCInvest.ru, sem er ekki sýnilegt almennum netnotendum. Tölvupóstar sem samtökin komust yfir sýna enn fremur hvernig stjórnendur og yfirmenn hjá þeim félögum sem halda utan um eignirnar hafa átt í samskiptum um daglegan rekstur eins og þeir séu hluti af sama fyrirtæki, að því er segir í frétt The Guardian um rannsóknina. Sérfræðingur í spillingu í Rússlandi segir uppljóstranirnar vekja spurningar um hvort að eignirnar séu undir sameiginlegri stjórn. „LLCInvest líkist helst samvinnufélagi eða samtökum þar sem félagar geta skipst á hlunnindum og eignum,“ segir sérfræðingurinn sem vildi ekki koma fram undir nafni af ótta við rússnesk yfirvöld. Allar meiriháttar eignir bendlaðar við Pútín í safninu Alls fundu OCCRP og rússneska fréttasíðan Meduza 86 fyrirtæki og góðgerðafélög sem virðast deila léninu. Á meðal eignanna er höll við Svartahaf sem er metin á milljarð dollara sem Alexei Navalní, helsti stjórnarandstæðingur landsins, fullyrti að hefði verið reist sérstaklega fyrir Pútín, og vínekrur í kringum hana. Þar er einnig skíðasvæði í Igora og sveitasetur norðan við Pétursborg. Samtökin fullyrða að allar meiriháttar eignir sem fjölmiðlar hafi tengt við Pútín forseta í gegnum tíðina tengist í gegnum tölvupóstlénið. Eignirnar eru jafnframt sagðar tengjast rússneska bankanum Bank Rossiya í gegnum upplýsingatæknifyrirtækið sem hýsir lénið. Bandaríska fjármálaráðuneytið hefur lýst Bank Rossiya sem „einkabanka háttsettra embættismanna rússneska sambandsríkisins“. Miklu magni lýsigagna tölvupósta fyrirtækisins var lekið til fjölmiðla í fyrra. Úr þeim gögnum mátti lesa hvernig eigendur algerlega ótengdra fyrirtækja á ólíkum sviðum ræddu saman um fjármál eins og þeir störfuðu undir sama hatti. Talsmaður Kremlarstjórnar hafnar því að Pútín hafi nokkuð að gera með eignirnar og fyrirtækin.
Rússland Vladimír Pútín Mál Alexei Navalní Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Innlent Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira