Báðir flokkar ósáttir við samfélagsmiðlafyrirtæki Samúel Karl Ólason skrifar 17. nóvember 2020 21:48 Mark Zuckerberg, forstjóri Facebook, ræddi við þingmenn með fjarfundartækni. AP/Bill Clark
Forstjórar Facebook og Twitter höfðu í vök að verjast á fundi dómsmálanefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag. Þingmenn Demókrataflokksins gagnrýndu fyrirtækin fyrir skort á aðgerðum gegn hatursorðræðu og svokallaðri upplýsingaóreiðu í tengslum við kosningarnar fyrr í mánuðinum. Repúblikanar gagnrýndu Dorsey og Zuckerberg fyrir að ritskoða Donald Trump, fráfarandi forseta, og aðra íhaldsmenn. Sérstaklega þegar kemur að ásökunum Trumps og bandamanna hans um að umfangsmikið kosningasvindl hafi átt sér stað og hann hafi í raun unnið kosningarnar. Twitter merkti um 300 þúsund tíst á milli 27. október og 11. nóvember á þann veg að þau væru misvísandi eða ósönn. Þar var um að ræða um það bil 0,2 prósent allra tísta um kosningarnar á því tímabili, samkvæmt Dorsey. Af þeim voru 456 einnig merkt með viðvörun um að búið væri að draga úr því hvernig hægt væri að dreifa þeim tístum. Jack Dorsey, forstjóri Twitter.AP/Bill Clark Facebook greip til sambærilegra aðgerða vegna rúmlega 150 milljón færslna á samfélagsmiðlinum, eftir að þær voru skoðaðar af óháðum aðilum. Facebook bannaði einnig færslur sem sneru að því að rugla fólk í rýminu varðandi hvenær og hvar það ætti að kjósa. Lindsay Graham, Repúblikani og formaður nefndarinnar, byrjaði fundinn á því að saka þá Dorsey og Zuckerberg um að ritskoða íhaldsmenn og sakaði fyrirtækin um að vilja stýra því hvað væri satt og hvað ekki. Þá gaf Graham í skyn að fella ætti niður reglur sem vernda samfélagsmiðlafyrirtæki fyrir lögsóknum vegna efnis sem birt er á miðlum þeirra. Demókratar eru að miklu leyti sammála því að svipta fyrirtækin þessari lagavernd en gefa upp allt aðrar ástæður, eins og bent er á í frétt AP fréttaveitunnar. Þeir hafa lagt áherslu á hatursorðræðu á samfélagsmiðlum og að orðræða þar geti og hafi leitt til ofbeldis í raunheimi. Bæði Zuckerberg og Dorsey viðurkenndu að mistök hefðu verið gerð innan veggja fyrirtækjanna en stóðu þó vörð um stefnur þeirra í þessum málum. Zuckerberg hefur áður sagt að verði umrædd regla felld niður, muni samfélagsmiðlafyrirtæki breyta skilmálum sínum verulega og ritskoða meira með því markmiði að komast hjá lögsóknum. Það sagði hann á öðrum þingnefndarfundi í síðasta mánuði. Dorsey sagði á sama fundi að niðurfelling reglunnar myndi alfarið breyta því hvernig fólk tjáir sig á internetinu.
Bandaríkin Forsetakosningar í Bandaríkjunum Samfélagsmiðlar Facebook Twitter Tengdar fréttir Facebook bannar efni sem afneitar helförinni Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur ákveðið að banna hjá sér deilingar á efni sem inniheldur þá söguskoðun að helförin hafi ekki átt sér stað eða breytir viðteknum söguskoðunum um hana. 12. október 2020 19:20 Forstjóri FBI óttast afskipti Rússa í kosningunum Christopher Wray, forstjóri Alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum, segir Rússa standa að baki villandi upplýsingum og falsfréttum varðandi Joe Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninganna. 17. september 2020 23:07 Facebook ætlar að banna pólitískar auglýsingar í aðdraganda forsetakosninganna Facebook mun hætta að birta nýjar pólitískar auglýsingar í aðdraganda forsetakosninganna Í Bandaríkjunum í byrjun nóvember. Þar að auki er verið að undirbúa sérstakar merkingar fyrir færslur þar sem stjórnmálamenn eða framboð reyna að eigna sér sigur áður en niðurstöður liggja fyrir. 3. september 2020 15:55 Framboð Trump dregur stærstu ásakanir sínar í Pennsylvaníu til baka Dómsmál sem framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta rekur vegna kosningaúrslitanna í Pennsylvaníu getur ekki hugsanlega hnikað úrslitunum til eftir að framboðið lét stærstan hluta ásakana sinna um meint kosningasvik niður falla. 16. nóvember 2020 10:34 Vill í hart gegn Fox með stofnun eigin miðils Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt vinum sínum að hann langi að stofna eigin fréttastofu og gera út netmiðil með því markmiði að ná höggi á Fox News og grafa undan miðlinum. 12. nóvember 2020 15:58 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Innlent Fleiri fréttir Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Sjá meira
Facebook bannar efni sem afneitar helförinni Samfélagsmiðlarisinn Facebook hefur ákveðið að banna hjá sér deilingar á efni sem inniheldur þá söguskoðun að helförin hafi ekki átt sér stað eða breytir viðteknum söguskoðunum um hana. 12. október 2020 19:20
Forstjóri FBI óttast afskipti Rússa í kosningunum Christopher Wray, forstjóri Alríkislögreglunnar í Bandaríkjunum, segir Rússa standa að baki villandi upplýsingum og falsfréttum varðandi Joe Biden, frambjóðanda Demókrataflokksins í aðdraganda forsetakosninganna. 17. september 2020 23:07
Facebook ætlar að banna pólitískar auglýsingar í aðdraganda forsetakosninganna Facebook mun hætta að birta nýjar pólitískar auglýsingar í aðdraganda forsetakosninganna Í Bandaríkjunum í byrjun nóvember. Þar að auki er verið að undirbúa sérstakar merkingar fyrir færslur þar sem stjórnmálamenn eða framboð reyna að eigna sér sigur áður en niðurstöður liggja fyrir. 3. september 2020 15:55
Framboð Trump dregur stærstu ásakanir sínar í Pennsylvaníu til baka Dómsmál sem framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta rekur vegna kosningaúrslitanna í Pennsylvaníu getur ekki hugsanlega hnikað úrslitunum til eftir að framboðið lét stærstan hluta ásakana sinna um meint kosningasvik niður falla. 16. nóvember 2020 10:34
Vill í hart gegn Fox með stofnun eigin miðils Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur sagt vinum sínum að hann langi að stofna eigin fréttastofu og gera út netmiðil með því markmiði að ná höggi á Fox News og grafa undan miðlinum. 12. nóvember 2020 15:58