Hægt að finna fyrir töfrunum á ævintýralegu skólabókasafni Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar 23. nóvember 2021 20:10 Dröfn er hugmyndasmiðurinn og reyndar einnig smiðurinn sjálfur. Það eru krakkarnir í Seljaskóla fá að njóta góðs af hennar frjóa hugmyndaflugi. vísir Krakkar í Seljaskóla eru himinlifandi með bókasafnsfræðinginn sinn sem leggur allt í skreytingar fyrir hátíðirnar. Jólabókahornið kemur krökkunum í jólaskap og eykur lestraráhuga í leiðinni.
Eruði mikil jólabörn? Jú, það halda nú þær vinkonurnar Brynja, Kristín og Sigrún, úr Seljaskóla. En vinkona þeirra Rut getur ekki tekið undir það: „Ég myndi ekki segja það.“ En kemstu í jólaskap þegar það er orðið svona jólalegt í skólanum? „Já.“ Þær Brynja, Kristín, Rut og Sigrún eru komnar í jólaskap.stöð 2 Og það skal engan undra því í Seljaskóla má með sanni segja að jólaandinn sé kominn á kreik, nú þegar 31 dagur er til jóla. Leitast við að bæta við töfrana Því til sönnunar er jólabókahornið sem búið er að setja upp á skólabókasafninu. Fréttastofa leit þar við í dag og spjallaði við krakkana og þann sem ber ábyrgð á þessu metnaðarfulla verkefni, bókasafnsfræðinginn Dröfn Vilhjálmsdóttur. Hér fyrir neðan er hægt að sjá hvernig er umhorfs í Seljaskóla: „Sko, mér finnst skólabókasafnið vera svona töfrandi staður og ég er alltaf að leitast við að bæta við töfrana og mig langar eiginlega að þegar börnin koma inn á skólabókasafnið þá séu þau eiginlega að koma bara inn í ævintýralega bók strax,“ segir Dröfn. Ert þú sjálf jólabarn? „Ég er dálítið jólabarn sjálf. Það hlýtur eiginlega að vera,“ segir hún og bendir í kring um sig á vel skreytt jólabókahornið. „Þannig ég er farin að hlakka til jólanna.“ Dröfn Vilhjálmsdóttir bókasafnsfræðingur reynir að gera safnið að ævintýralegum og spennandi stað fyrir krakkana.stöð 2 En þetta er ekki í fyrsta skipti sem Dröfn tekur sig til og skreytir safnið fyrir krakkana. Þannig má eiginlega segja að Dröfn hafi toppað sig fyrir hrekkjavökuna þar sem öllu var tjaldað til, meira að segja reykvél. Frá því á hrekkjavökunni. Dröfn lætur börnin draga bókaflokka til að velja sér bók úr - ef þeir þora.skólabókasafn Seljaskóla Ímyndunarafl Drafnar ýtir undir lestraráhuga barna Það leynir sér allavega ekki að krakkarnir eru hrifnir af Dröfn og hennar stórkostlegu skreytingum. Haldiði að þið lesið meira fyrir vikið? spyrjum við annan vinkvennahóp á safninu, þær Rannveigu, Kristínu, Stellu Björk og Aþenu. „Já, sérstaklega jólabækur,” segja þær. Vinkonurnar Rannveig, Kristín, Stella Björk og Aþena.stöð 2 „Mér finnst bara mjög gaman hvernig Dröfn er svona með ímyndunarafl og gerir alltaf svona á jóla og hrekkjavökunni. Þá skreytir hún mjög mikið og það er bara mjög gaman. Þá fær maður svona meiri áhuga á bókum,” segir Stella Björk. Og á meðan krakkarnir bíða spenntir eftir jólunum og telja niður dagana geta þeir drepið tímann með góðum jólabókalestri í snjóhúsinu í jólabókahorninu í Seljaskóla. Snjóhús úr eggjabökkum og huggulegur arinn við hliðina. Það er ekki leiðinlegt að lesa í þessu umhverfi.skólabókasafn seljaskóla
Jól Jólaskraut Grunnskólar Reykjavík Bókmenntir Söfn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bíll logaði í Vesturbænum Innlent Slagsmál enduðu með nefbroti Innlent Fleiri fréttir Tíðindi í kjaradeilu flugvallarstarfsmanna og bein útsending úr Bakgarðshlaupinu Frestun verkfalla kemur til greina „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Sáttasemjari boðar til fundar: Fimm dagar til stefnu Orkuskipti, innflytjendalöggjöf og bensínstöðvalóðirnar „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Ný sýn fékk meirihluta Slagsmál enduðu með nefbroti Bíll logaði í Vesturbænum „Eldgosið virðist í andarslitrunum“ Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Sjá meira