Júlíus skoraði í norska bikarnum

Júlíus Magnússon er yfirleitt sterkur í bikarnum
Júlíus Magnússon er yfirleitt sterkur í bikarnum mbl.is/Óttar Geirsson

Júlíus Magnússon fyrirliði Frederikstad í Noregi skoraði fjórða mark liðsins í 5:2 útisigri á Eik-Tönsberg í 32-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í fótbolta í dag.

Júlíus byrjaði á bekknum í dag og kom inn á 62. mínútu en mótherji Frederikstad leikur í þriðju efstu deild. Júlíus skoraði á 78. mínútu leiksins og kom liði sínu í 4:2.

Júlíus hefur verið fastamaður í liði Frederikstad síðan hann gekk til liðs við félagið fyrir síðasta tímabil en Frederikstad leikur í norsku úrvalsdeildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert