Réðst á mann og annan

Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglu var í dag tilkynnt um mann sem var til vandræða í hóteli í miðborginni. Maðurinn hafði brotið húsgögn á hótelinu og veist að öðrum.

Maðurinn var svo handtekinn og vistaður í fangaklefa tveimur tímum síðar, eftir að hann réðst á annan mann fyrir utan Hlemm, samkvæmt dagbók lögreglu. 

Þá var annar fjarlægður af bráðamóttökunni fyrir að vera til vandræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert