Mögulega ekki greiðfært með atkvæði yfir fjallvegi í kvöld Kjartan Kjartansson skrifar 25. september 2021 11:34 Þessi ferfætlingur var ekki á kjörskrá í Reykjavík en kjörsókn er þó meiri en fyrir fjórum árum. Frá kjörstað í Ráðhúsi Reykjavíkur í morgun. Vísir/Vilhelm Kaldara og lygnara er í veðri víða á landinu í dag en veðurspár gerðu ráð fyrir fyrr í vikunni. Veðrið er því ólíklegt til að hafa áhrif á kjörsókn en gæti sett strik í reikninginn þegar flytja þarf atkvæði yfir fjallvegi í kvöld, að sögn veðurfræðings.
Fyrr í vikunni var spáð afleitu veðri á kjördag, suðvestan rigningarstormi. Áhyggjur voru af því að slíkt veður gæti dregið úr kjörsókn og seinkað talningu sums staðar á landsbyggðinni þar sem flytja þarf atkvæði yfir fjallvegi eða sjóleiðina. Lægðin sem veldur veðrinu hefur þó tekið breytingum og vindur er nú norðlægari, að sögn Teits Arasonar, veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Víða er allshvasst eða strekkingur. Kaldara veður þýðir að úrkoma sem er spáð á landinu norðan- og austanverðu fellur líklega sem snjór eða slydda á heiðum og fjallvegum. „Það er möguleiki að það verði ekki greiðfært með atkvæðin yfir fjallvegi eftir að kjörstaðir loka í kvöld,“ segir Teitur. Í versta falli geti björgunarsveitir þó flutt atkvæðin en þær hafi oft lagt á heiðar í verra veðri en spáð er í kvöld. Á láglendi ætti hins vegar að vera greiðfært alls staðar. Teitur segir breytingarnar á veðrinu frá fyrri spám betri fyrir kjörsókn. „Í slagviðri eins og átti að vera hefðu kannski einhverjir síður farið á kjörstað,“ segir hann. Á höfuðborgarsvæðinu er prýðilegasta veður en það er ekki dæmigert fyrir veðrið annars staðar á landinu. Teitur segir langbesta veðrið á landinu þar. Ekki er spáð úrkomu og þá er stór hluti borgarinnar í skjóli fyrir vindáttinni.
Alþingiskosningar 2021 Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss Innlent Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Innlent Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Innlent Stillir viðtækið á alheimsdögunina Innlent „Skítkastið var ógeðslegt“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Lífverðir Selenskís sakaðir um að skipuleggja banatilræði Erlent Verðhækkanir á döner-kebab eitt helsta áhyggjuefni Þjóðverja Erlent „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Innlent Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Innlent Fleiri fréttir Aðstæður fyrir stýrivaxtalækkun á morgun Gosið gæti þúsundfaldast við nýjan atburð Séra Guðrún kjörin biskup Íslands Segja „alvarlegar staðreyndavillur“ í umfjöllun Kastljóss SA og SSF skrifuðu undir langtímakjarasamning Agnes segir nýjan biskup taka við annarri kirkju en hún tók við Stýrivextir, Eurovision og biskupskjör „Skítkastið var ógeðslegt“ Fiskadauði í einni af mestu sjóbirtingsveiðiám landsins Valtýr ráðinn yfirlæknir Ný nálgun Samfylkingar í orkumálum konfekt í eyrum Jóns Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu „Massíf slysaslepping á vondu frumvarpi“ Stillir viðtækið á alheimsdögunina Þrír handteknir vegna vopnalagabrota og tveir vegna líkamsárásar Beinagrindur og ástarsorg á Bessastöðum Alþjóðanemar neyðist til að vinna svart á Íslandi „Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Stóra stundin að renna upp: Bjartsýn en með báða fætur á jörðinni Sanngirnisbótafrumvarpið sé blekking Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Kveikt í papparusli í Glæsibæ Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Ákall frá föður látins fanga og beinagrindur á Bessastöðum Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Örlætisgjörningur ríkislögreglustjóra til tals á þinginu Brynjar hefur ekki orðið var við neina skrímsladeild í Valhöll Framkvæmdir muni ekki hafa marktæk áhrif á daglega starfsemi Segja varkárni ávallt hafa verið Haraldi efst í huga Sjá meira