Innlent

Óvissustigi vegna Covid aflýst

Samúel Karl Ólason skrifar
Engar opinberar aðgerðir hafa veri í gangi frá febrúar í fyrra.
Engar opinberar aðgerðir hafa veri í gangi frá febrúar í fyrra. Vísir/Vilhelm

Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni ákveðið að aflýsa óvissustigi Almannavarna vegna heimsfaraldurs Covid-19. Frá 27. janúar 2020 hafa ýmis almannavarnastig verið í gildi en er þar um að ræða óvissu-, hættu og neyðarstig.

Í yfirlýsingu frá almannavörnum segir að ekkert nýtt afbrigði hafi greinst hér á landi í rúmlega ár, íbúar séu vel bólusettir og innlögnum á sjúkrahús hafi fækkað. Þar að auki hafi engar opinberar aðgerðir verið í gangi frá febrúar 2022.

Landspítali, sem hafði starfað á ýmsum hættustigum frá 30. janúar 2020, var færður af óvissustigi þann 15. mars síðastliðinn. Heilsugæslan hætti að bjóða upp á greiningar frá og með fyrsta mars en þá höfðu um tíu manns verið að greinast á dag.

Faraldur Covid er enn yfirlýstur heimsfaraldur af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni og talinn ógn við lýðheilsu í heiminum.

Sjúkdómurinn er einnig enn til staðar hér á landi. Í hverri viku er fólk veikt á sjúkrahúsi. Fyrir utan veikindi voru 246 andlát skráð vegna Covid-19 frá 2020 til 2022. Í janúar 2023 voru þrettán andlát en í febrúar hefur eitt andlát verið skráð, samkvæmt bráðabirgðatölum.

„Þó dregið hafi úr aðgerðum vegna Covid-19 í flestum löndum er faraldurinn enn í gangi með tilheyrandi veikindum, andlátum og álagi á heilbrigðiskerfi. Vöktun, eftirlit og viðbrögð við Covid-19 verða áfram með sama hætti og vegna annarra smitsjúkdóma sem sóttvarnalæknir vaktar. Ef tilefni er til verður viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs virkjuð á ný á viðeigandi almannavarnastigi,“ segir í áðurnefndri yfirlýsingu.

Þar segir að upplýsingar sóttvarnalæknis um Covid á Íslandi, Covid.is, muni færast alfarið yfir á vef landlæknis. Það eru upplýsingar um viðbrögð, bólusetningar og tölfræði. Þá hefur embætti landlæknis sett upp sérstakt mælaborð með upplýsingum um umframdánartíðni á Íslandi og Covid-19 andlát.


Tengdar fréttir

Ó­vissu­stigi vegna Co­vid-19 loks af­létt á Land­spítala

Landspítalinn var í gær færður af óvissustigi vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Runólfur Pálsson forstjóri ákvað þetta í samráði við farsóttanefnd spítalans en sjúkdómurinn Covid-19 virðist nú vera búinn að ná jafnvægi í samfélaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×