Vonast til þess að lykilupplýsingar um uppruna Covid-19 leynist í gömlum blóðsýnum í Wuhan Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 12. október 2021 23:30 Frá Wuhan í Kína. Getty Yfirvöld í Kína hyggjast skima tugi þúsunda blóðsýna sem safnað var saman í Wuhan-borg allt frá lokum ársins 2019, í von um að upplýsingar sem þar leynist geti varpað ljósi á hvernig Covid-19 barst fyrst í menn. Vísindamenn vilja að erlendir sérfræðingar fái að fylgjast með ferlinu.
Allt að tvö hundruð þúsund blóðsýni eru geymd í blóðbanka í Wuhan-borg, þar sem fyrst varð vart við veiruna sem breiddist svo út um allan heim þaðan. Rannsakendur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin bentu á í febrúar að þarna gætu leynst lykilupplýsingar um hvar og hvenær Covid-19 barst fyrst í menn. Í frétt CNN segir að blóðsýnin nái aftur til ársins 2019. Kínversk yfirvöld segja að blóðsýnin séu geymd í tvö ár sé þeirra þörf sem sönnunargögn í lögsóknum sem tengjast blóðgjöfum. Þessi tveggja ára biðtími er senn á enda fyrir blóðsýni sem tekin voru í október og nóvember árið 2019, en á þeim tíma telja sérfræðingar líklegt að veiran hafi fyrst borist í menn. Vonast er til þess að blóðsýnin geti varpað ljósi á það hvenær Covid-19 barst fyrst í menn.Getty/David Silverman Embættismenn í Kína segja í frétt CNN að þegar þessi tveggja ára biðtími sé á enda muni rannsókn á blóðsýnunum hefjast. Mauren Miller, faraldsfræðingur hjá Columbia-háskólanum í Bandaríkjunum segir að það sé algjörlega víst að í blóðsýnunum muni leynast mikilvægar vísbendingar um hvar og hvernig Covid-19 barst fyrst í menn. Kallar hún eftir því að yfirvöld í Kína leyfi erlendum sérfræðingum að fylgjast með ferlinu. „Það mun engin trúa útgefnum niðurstöðum frá Kína nema hæfir sérfræðingar fái að minnsta kosti að fylgjast með ferlinu,“ segir hún. Í frétt CNN segir að ef blóðsýnin hafi verið geymd á réttan hátt sé mögulegt að finna þar fyrstu merki um að móttefni hafi verið myndað gegn Covid-19. Finnist vísbendingar um það sé hægt að finna út hvenær Covid-19 barst fyrst í menn út frá dagsetningu blóðsýnanna.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kína Vísindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent Fleiri fréttir Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Sjá meira