Þremur hundum bjargað úr eldsvoðanum

Nokkur viðbúnaður var við húsið vegna eldsins.
Nokkur viðbúnaður var við húsið vegna eldsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Slökkviliðið náði að bjarga þremur hundum úr eldsvoða sem varð í Arakór í Kópavogi um þrjúleytið í dag. Engum íbúum varð meint af en hundarnir voru sendir til dýralæknis til skoðunar.

Slökkvistarf gekk greiðlega fyrir sig og náðist að slökkva eldinn á innan við klukkutíma. Nokkurt tjón varð á húsinu en lögregla hefur nú tekið við málinu og fer fram sérfræðilegt mat á tjóni í kjölfarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert