Margrét nú verið drottning í hálfa öld Atli Ísleifsson skrifar 14. janúar 2022 07:52 Margrét Þórhildur nýtur mikilla vinsælda í Danmörku, en í skoðanakönnun árið 2014 sögðust 85 prósent Dana andsnúnir því að afleggja konungsdæmið. AP Danir fagna því í dag að fimmtíu ár eru liðin frá því að Margrét Þórhildur varð drottning landsins. Fyrirhuguðum hátíðarhöldum vegna valdaafmælisins hafði áður verið frestað til næsta hausts vegna heimsfaraldursins.
Margrét Þórhildur varð drottning Danmerkur 14. janúar 1972, þá 31 árs að aldri, þegar faðir hennar, Friðrik IX lést 72 ára að aldri. Þáverandi forsætisráðherra landsins, Jens Otto Krag, stóð svo ásamt Margréti á svölum Kristjánsborgarhallar, nítján klukkustundum eftir andlát konungsins og lýsti því formlega yfir að Margrét væri ný drottning landsins. Þó að formlegri hátíðardagskrá hafi verið frestað verður afmælisins minnst með athöfn í þinghúsinu þar sem Mette Frederiksen forsætisráðherra og Bárður á Steig Nielsen, lögmaður Færeyja, verða meðal ræðumanna. Múte B. Egede, formaður landsstjórnar Grænlands, átti sömuleiðis að halda tölu en varð að boða forföll eftir að hann greindist með kórónuveiruna í gær. Halda til Dómkirkjunnar í Hróarskeldu Á hádegi munu Margrét Þórhildur og meðlimir fjölskyldu hennar halda til Dómkirkjunnar í Hróarskeldu þar sem krans verður lagður við leiði Friðriks IX og Ingiríðar drottningar, foreldra drottningarinnar. Margrét fagnaði áttræðisafmæli sínu á síðasta ári en þá, líkt og nú, varð að fresta hátíðarhöldum vegna faraldursins. Einungis Kristján IV, sem réð ríkjum á sautjándu öld, hefur setið lengur á konungsstól í landinu, eða 59 ár. Þá hefur einungis Elísabet II Englandsdrottning setið lengur en Margrét Þórhildur á drottningarstóli í Evrópu. Þurfti þjóðaratkvæðagreiðslu til Þjóðaratkvæðagreiðslu þurfti á sínum tíma til að Margrét Þórhildur gæti yfirhöfuð orðið drottning. 85 prósent landsmanna greiddu árið 1953 atkvæði með því að kona gæti tekið við krúnunni. Mikil undiralda var á þeim tíma með auknum feminisma í dönsku þjóðfélagi og sömuleiðis þeirri staðreynd að Friðrik og Ingiríður höfðu eignast þrjár dætur og engan son. Margrét Þórhildur nýtur mikilla vinsælda í Danmörku og segir í frétt AP að samkvæmt skoðanakönnun árið 2014 sögðust 85 prósent Dana andsnúnir því að afleggja konungsdæmið. Heimir Már Pétursson ræddi við Margréti Þórhildi í Kaupmannahöfn árið 2017 og þar kom Ísland sannarlega við sögu.
Danmörk Kóngafólk Tímamót Margrét Þórhildur II Danadrottning Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Erlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni Innlent Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dregur saman með efstu frambjóðendum Innlent Fleiri fréttir Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Sjá meira