Barcelona tapaði í lokaumferðinni og Valladolid féll Smári Jökull Jónsson skrifar 4. júní 2023 21:23 Gabri Veiga skoraði fyrir Celta Vigo í dag. Vísir/Getty Barcelona tapaði fyrir Celta Vigo í lokaumferð spænsku úrvalsdeildarinnar í dag. Real Valladolid er fallið niður í aðra deild.
Spænsku úrvalsdeildinni lauk í dag og var ljóst fyrr í kvöld að Real Madrid endaði í öðru sæti deildarinnar eftir æsispennandi slag við nágranna sína í Atletico. Barcelona var fyrir löngu búið að vinna meistaratitilinn og því lítil spenna fyrir leik liðsins gegn Celta Vigo nú í kvöld. Gabri Veiga kom Celta Vigo yfir undir lok fyrri hálfleiks í leik liðanna í dag og bætti við öðru marki á 65. mínútu. Ungstirnið Ansu Fati minnkaði muninn fyrir Barcelona sem komst þó ekki lengra og Celta Vigo fór með sigur af hólmi 2-1. Þrátt fyrir tapið lauk Barcelona keppni með tíu stiga forystu í efsta sæti deildarinnar. Real Valladolid féll niður í næst efstu deild eftir að hafa gert 0-0 jafntefli við Getafe á heimavelli. Valladolid var með boltann 80% af leiktímanum í dag en tókst þó ekki að skora en sigur hefði dugað þeim til að halda sæti sínu á kostnað liðs Almeria sem gerði 3-3 jafntefli við Espanyol. Real Valladolid, owned by Ronaldo Nazario, have been relegated from LaLiga after a 0-0 draw with Getafe.They were previously relegated from Spain's top flight in 2021. pic.twitter.com/9zVfrzfhwj— CBS Sports Golazo (@CBSSportsGolazo) June 4, 2023 Fimm lið frá Spáni taka þátt í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Barcelona, Real Madrid, Atletico Madrid og Real Sociedad enduðu í fjórum efstu sætum deildakeppninnar og þá vann Sevilla sér sæti í Meistaradeildinni með því að vinna sigur í Evrópudeildinni á þessu tímabili. Villareal og Real Betis unnu sér þátttökurétt í Evrópudeildinni og Osasuna verður fulltrúi Spánar í Sambandsdeildinni. Real Valladolid, Espanyol og Elche falla niður í næst efstu deild.
Spænski boltinn Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Fleiri fréttir Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Sjá meira