Aganefndin dæmdi Erling í bann en sleppti Mörtu Smári Jökull Jónsson skrifar 22. mars 2023 18:00 Marta Wawrzynkowska fékk umdeilt rautt spjald í bikarúrslitaleiknum um helgina. Vísir/Diego Marta Wawrzynkowska fær ekki leikbann eftir rauða spjaldið sem hún fékk í úrslitaleik bikarkeppninar í handbolta um helgina. Þjálfari karlaliðs ÍBV er hins vegar á leið í leikbann.
Marta Wawrzynkowska fékk umdeilt rautt spjald þegar ÍBV mætti Val í bikarúrslitaleik kvenna í handknattleik um helgina. Spjaldið fékk hún eftir árekstur við Theu Imani Sturludóttur leikmann Vals en þrátt fyrir að missa Mörtu af velli tryggði ÍBV sér bikarmeistaratitilinn með 31-29 sigri. Aganefnd HSÍ fundaði í gær og í úrskurði nefndarinnar, sem birtur er á heimasíðu HSÍ, kemur fram að Marta Wawrzynkowska hafi í leiknum hlotið útilokun með skýrslu. Einnig kemur fram að dómarar leiksins hafi metið að brotið falli undir reglu 8:5 b) sem beitt er þegar leikmaður ræðst með „sérstaklega öflugri aðgerð gegn hluta líkama mótherja, sérstaklega andliti, hálsi eða hnakka.“ Niðurstaða nefndarinnar er þó sú að aðhafast ekki frekar vegna málsins. Marta er í leikmannahópi ÍBV gegn KA/Þór en leikur liðanna hófst í Eyjum klukkan 17:30. Á fundi aganefndarinnar í gær var einnig tekið fyrir mál Erlings Richardssonar, þjálfara karlaliðs ÍBV, sem hlaut útilokun með skýrslu vegna mjög grófrar ódrengilegrar hegðunar eftir leik Harðar og ÍBV á Ísafirði í síðustu viku. Niðurstaða nefndarinnar er að Erlingur er dæmdur í eins leiks bann og verður hann því ekki á hliðarlínunni þegar ÍBV mætir Fram í Eyjum á laugardag. Eyjamenn ættu þó ekki að vera í vandræðum með afleysingu því Magnús Stefánsson, aðstoðarþjálfari liðsins, verður aðalþjálfari ÍBV á næstu leiktíð eins og fram kom hér á Vísi á dögunum. Þá var einnig úrskurðað í málum Skarphéðins Ívars Einarssonar, leikmanns KA, og Þráins Orra Jónssonar, leikmanns Hauka, en báðir hluti þeir útilokun í leikjum sinna liða í síðustu umferð. Aganefndin ákvað þó að hvorugur leikmannanna fengi bann og verða þeir því klárir í slaginn í næstu umferð.
Olís-deild kvenna Olís-deild karla Mest lesið Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Enski boltinn Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Fleiri fréttir „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Uppgjörið: Eistland - Ísland 24-37 | Gengu örugglega frá Eistum og tryggðu farseðil á HM Frost í sókn en sveinar Dags mörðu sigur Segja Ísland hafa skorað fimmtíu án þess að svitna „Annað hvort gera þeir eins og Man. City eða eins og Liverpool“ Grafalvarleg staða: „Við verðum að breyta þessu strax“ Einar Bragi skrifaði undir tveggja ára samning í Svíþjóð Slóvakía skellti Póllandi óvænt í umspili HM „Við vorum skugginn af sjálfum okkur“ Uppgjörið og viðtöl: Valur - Haukar 28-27 | Íslandsmeistarnir sluppu með skrekkinn Gagnrýnir lítinn stuðning við afreksíþróttafólk: „Upphæðin ein og sér er grín“ Myndaveisla frá risasigrinum á Eistum Sjá meira