Helmingur barnanna á íslenska SOS-foreldra Margrét Björk Jónsdóttir skrifar 4. desember 2022 23:28 Þórdís Kolbrún heimsótti SOS-barnaþorpið fyrsta degi vinnuheimsóknar til Malaví. Stjórnarráðið Helmingur barna á barnaheimili í Lilongve, höfuðborg Malaví, á íslenska SOS-foreldra. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra heimsótti barnaþorpið í dag.
Þórdís Kolbrún heimsótti SOS-barnaþorpið fyrsta degi vinnuheimsóknar til Malaví, elsta samstarfsríkis Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu. Hope Msosa, aðstoðarframkvæmdastjóri SOS í Malaví tók á móti Þórdísi og upplýsti hana um helstu samtakanna í landinu. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Í tilkynningunni kemur fram að SOS Barnaþorpin séu fjögur í Malaví og að samtökin sjá 433 umkomulausum og yfirgefnum börnum fyrir heimilum í landinu. „Þar af eiga 166 þeirra styrktarforeldra á Íslandi. Hlutfallið er enn hærra í barnaþorpinu í Lilongve, eða 43 börn af 88.“ Helmingur barna á SOS barnaheimilinu í Lilongve, höfuðborg Malaví, á íslenska SOS-foreldra.Stjórnarráðið „Frjáls félagasamtök eru mikilvægir samstarfsaðilar í þróunarsamvinnu og ráðuneytið gerði fyrr á árinu rammasamninga við nokkur þeirra, þar á meðal SOS Barnaþorpin, sem við höfum átt langt og farsælt samstarf við. Það er mjög ánægjulegt að kynnast starfi samtakanna í Malaví og sjá með eigin augum að velferð barnanna er sett í öndvegi. Mér finnst einnig mikið koma til þeirrar nýju áherslu samtakanna að styðja við nærsamfélagið með verkefnum á sviði fjölskyldueflingar,“ er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu í tilkynningunni. Fyrr á þessu ári hófu SOS Barnaþorpin á Íslandi að styðja við sérstakt fjölskyldueflingarverkefni í Malaví. Markmið verkefnisins er að forða börnum frá aðskilnaði við foreldra og styðja fjölskyldur til fjárhagslegs sjálfstæðis. „Stuðningurinn nær til 1500 barna og ungmenna í 400 fjölskyldum sem vegna bágra aðstæðna heima fyrir fá ekki grunnþörfum sínum mætt. Önnur 15 þúsund börn frá 500 heimilum njóta óbeint góðs af verkefninu því hluti þess er að styðja veikbyggða innviði í samfélaginu. Alls eru um ein milljón barna í Malaví sem hafa misst annað foreldri sitt eða báða og þurfa á ríkum stuðningi að halda,“ segir í tilkynningunni. Þórdís Kolbrún mun einnig eiga fund með fulltrúum Rauða krossins í Malaví í vikunni en Rauði krossinn á Íslandi hefur um tveggja áratuga skeið átt í samstarfi við systurfélagið í Malaví.
Hjálparstarf Utanríkismál Malaví Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Fleiri fréttir Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Sjá meira