Verður Gabriel Jesus frá næstu þrjá mánuðina? Smári Jökull Jónsson skrifar 4. desember 2022 11:31 Gabriel Jesus gæti verið lengi frá. Vísir/Getty Brasilískir fjölmiðlar greina frá því að Gabriel Jesus leikmaður Arsenal þurfi að fara í aðgerð og verði frá næstu þrjá mánuðina. Jesus meiddist á hné í leik Brasilíu og Kamerún á heimsmeistaramótinu í Katar.
Gabriel Jesus fór af velli á 64.mínútu leiksins gegn Kamerún á föstudag og í gær var síðan greint frá því að hann yrði ekki meira með á heimsmeistaramótinu í Katar. Leikurinn gegn Kamerún var sá fyrsti þar sem Jesus var í byrjunarliði Brasilíu á mótinu en liðið hafði tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum fyrir leikinn og hvíldi marga af sínum lykilmönnum. Upphaflega var talið að Jesus yrði frá í 4-6 vikur vegna meiðslanna en í dag greinir brasilíski miðillinn SporTV frá því að Jesus hafi farið í rannsókn í gær og í ljós hafi komið að meiðslin væru alvarlegri en talið var í fyrstu. Jesus muni fljúga til Lundúna í dag þar sem hann mun gangast undir aðgerð. Líklegt er að hann verði frá í þrjá mánuði vegna meiðslanna. Þessar fréttir eru áfall fyrir Mikel Arteta þjálfara Arsenal. Jesus hefur sýnt góða takta síðan hann gekk til liðs við Arsenal í sumar og skorað fimm mörk og gefið fimm stoðsendingar í fjórtán leikjum. Gabriel Jesus could miss up to three months of action as a result of the knee injury that has ruled him out of the remainder of this World Cup @Samjdean#TelegraphFootball #FIFAWorldCup #Qatar2022— Telegraph Football (@TeleFootball) December 4, 2022 Arsenal hefur leik í ensku úrvalsdeildinni að nýju á annan dag jóla þegar liðið mætir West Ham. Eddie Nketiah er eini hreinræktaði framherjinn í leikmannahópi Arsenal fyrir utan Jesus, þó Gabriel Martinelli geti einnig leyst framherjastöðuna en hann hefur að mestu leikið úti á vængnum á tímabilinu. Svo gæti því farið að Arteta reyni að finna framherja þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Enski boltinn Mest lesið Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Í beinni: Valur - Olympiacos | Fyrri úrslitaleikur Vals í Evrópubikarnum Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Enski boltinn Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Fótbolti De Zerbi hættir hjá Brighton Enski boltinn Efsti maður heimslistans tók upphitunina í fangaklefanum Golf Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Fótbolti Fleiri fréttir Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Jón Dagur kom inn af bekknum og bjargaði stigi Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Kristín Dís lék allan leikinn er Brøndby komst í úrslit Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Infantino segir samtökunum að hætta „tilgangslausu þrasi“ um leikjaálag Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn „Það eru alltaf einhverjar leiðir sem opnast í pressu“ Nýliðinn í íslenska landsliðinu er markahæst í dönsku úrvalsdeildinni Þorsteinn valdi þrjá nýliða fyrir mikilvæga leiki Svona var blaðamannafundur Þorsteins fyrir mikilvæga leiki Allt í skrúfunni hjá Bæjurum: Tuchel fer eftir allt saman Sjá meira