Sex fluttir á slysadeild eftir árás í Borgarholtsskóla Kolbeinn Tumi Daðason, Kristín Ólafsdóttir og Atli Ísleifsson skrifa 13. janúar 2021 13:03 Sérsveitarmenn fyrir utan Borgarholtsskóla í dag sjást til vinstri á mynd. Myndin til hægri er tekin inni í skólanum í dag. Samsett Sex voru fluttir á slysadeild á öðrum tímanum í dag eftir að árás var gerð í Borgarholtsskóla. Þetta staðfestir varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Einn var leiddur út úr skólanum í járnum. Fjöldi lögreglubíla og sjúkrabíla mætti upp í Borgarholtsskóla upp úr klukkan eitt en lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra vegna málsins. Ungur maður var leiddur í járnum út úr skólanum um klukkan 13:30 og færður út í lögreglubíl. Eftir það hafi verið dregið úr viðbúnaði á staðnum að sögn fréttamanns á staðnum. Vísir fékk myndbandið hér fyrir neðan sent frá sjónarvotti þar sem má sjá árás með hafnaboltakylfu. Myndbandinu hefur verið breytt til að má út persónugreinanlegar upplýsingar. Við vörum viðkvæma við myndbandinu. Klippa: Árás með hafnarboltakylfu í Borgarholtsskóla Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir að svo virðist sem ráðist hafi verið á nemendur í skólanum, einhvers konar átök hafi átt sér stað. Hún kveðst ekki vita að svo stöddu hvort hnífi hafi verið beitt við árásina. Tilkynning barst lögreglu skömmu fyrir klukkan 13 í dag.Vísir/Vilhelm Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að þrír hafi mætt vopnaðir í skólann. Komið hafi til hópslagsmála á göngunum og þau síðan borist út. Starfsmannafundi lauk nú á þriðja tímanum og segir Ársæll að starfsfólk skólans sé í áfalli vegna atburðanna. Telja sig hafa náð í skottið á flestum Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við Vísi að tilkynnt hafi verið um átök milli manna í skólanum rétt fyrir klukkan 13. Fengust upplýsingar um að hafnaboltakylfa og jafnvel fleiri vopn hafi verið notuð. Ásgeir Þór staðfestir að einhverjir séu sárir og verði fluttir á slysadeild til skoðunar. Nemendum var gert að fara út úr skólanum eftir að árásin var gerð.Vísir/Vilhelm „Við sendum talsvert stóran hluta af útkallsliði okkar og sérsveitina sem fylgir í slík útköll. Við teljum að við höfum náð stjórn á vettvangnum og náð í skottið á flestum sem áttu aðild að þessu.“ Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ráku sérsveitarmenn nemendur inn í skólastofur á meðan þeir reyndu að ná tökum á aðstæðum. Í framhaldinu voru nemendur sendir heim. Fréttin hefur verið uppfærð. Ítarlega verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Lögreglumenn að störfum fyrir utan Borgarholtsskóla í dag.Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Reykjavík Lögreglumál Vopnuð árás í Borgarholtsskóla Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Sjá meira
Fjöldi lögreglubíla og sjúkrabíla mætti upp í Borgarholtsskóla upp úr klukkan eitt en lögregla á höfuðborgarsvæðinu hefur notið aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra vegna málsins. Ungur maður var leiddur í járnum út úr skólanum um klukkan 13:30 og færður út í lögreglubíl. Eftir það hafi verið dregið úr viðbúnaði á staðnum að sögn fréttamanns á staðnum. Vísir fékk myndbandið hér fyrir neðan sent frá sjónarvotti þar sem má sjá árás með hafnaboltakylfu. Myndbandinu hefur verið breytt til að má út persónugreinanlegar upplýsingar. Við vörum viðkvæma við myndbandinu. Klippa: Árás með hafnarboltakylfu í Borgarholtsskóla Elín Agnes Kristínardóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir að svo virðist sem ráðist hafi verið á nemendur í skólanum, einhvers konar átök hafi átt sér stað. Hún kveðst ekki vita að svo stöddu hvort hnífi hafi verið beitt við árásina. Tilkynning barst lögreglu skömmu fyrir klukkan 13 í dag.Vísir/Vilhelm Ársæll Guðmundsson skólameistari segir að þrír hafi mætt vopnaðir í skólann. Komið hafi til hópslagsmála á göngunum og þau síðan borist út. Starfsmannafundi lauk nú á þriðja tímanum og segir Ársæll að starfsfólk skólans sé í áfalli vegna atburðanna. Telja sig hafa náð í skottið á flestum Ásgeir Þór Ásgeirsson yfirlögregluþjónn segir í samtali við Vísi að tilkynnt hafi verið um átök milli manna í skólanum rétt fyrir klukkan 13. Fengust upplýsingar um að hafnaboltakylfa og jafnvel fleiri vopn hafi verið notuð. Ásgeir Þór staðfestir að einhverjir séu sárir og verði fluttir á slysadeild til skoðunar. Nemendum var gert að fara út úr skólanum eftir að árásin var gerð.Vísir/Vilhelm „Við sendum talsvert stóran hluta af útkallsliði okkar og sérsveitina sem fylgir í slík útköll. Við teljum að við höfum náð stjórn á vettvangnum og náð í skottið á flestum sem áttu aðild að þessu.“ Samkvæmt upplýsingum fréttastofu ráku sérsveitarmenn nemendur inn í skólastofur á meðan þeir reyndu að ná tökum á aðstæðum. Í framhaldinu voru nemendur sendir heim. Fréttin hefur verið uppfærð. Ítarlega verður fjallað um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Lögreglumenn að störfum fyrir utan Borgarholtsskóla í dag.Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Vísir/Vilhelm Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við ábendingum, myndum og myndböndum á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Reykjavík Lögreglumál Vopnuð árás í Borgarholtsskóla Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Fleiri fréttir Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Diskóstemming í Bíóhöllinni á Akranesi Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Bein útsending: Ársfundur Landspítala Sjá meira