Veður

All­hvass norðan­vindur með rigningu eða slyddu norðan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður nálægt frostmarki norðanlands.
Hiti verður nálægt frostmarki norðanlands. Vísir/Vilhelm

Eftir mildar og suðlægar áttir gærdagsins verður norðan strekkingur eða allhvass vindur með rigningu eða slyddu um norðanvert landið en að mestu skýjað og lítilsháttar væta sunnantil.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að hiti verði nálægt frostmarki norðanlands en allt að átta stig með suðurströndinni.

„Í fyrramálið dregur úr vindi og léttir til vestantil en vestan 8-13 m/s og dálítil rigning eða slydda austanlands framað hádegi. 

Vaxandi suðvestanátt og þykknar upp síðdegis, fyrst á Vestfjörðum. Suðvestan 10-18 m/s og skýjað annað kvöld, en hægari vindur og bjartviðri á Suðurlandi.“

Spákortið fyrir klukkan 15 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s og léttskýjað að mestu. Hiti 0 til 6 stig en um eða undir frostmarki á Norður- og Norðausturlandi.

Á föstudag: Vestlæg átt og lítilsháttar væta vestanlands og stöku él fyrir norðan en annars skýjað með köflum. Hiti 0 til 6 stig. Snýst í norðanátt og kólnar um kvöldið.

Á laugardag: Norðaustlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s. Skýjað að mestu og dálítil væta á víð og dreif, einkum sunnan- og vestanlands. Hiti kringum frostmarki norðantil en 0 til 5 stig syðra.

Á sunnudag: Ákveðin norðaustanátt með rigningu eða slyddu, en úrkomuminna vestanlands. Hiti breytist lítið.

Á mánudag: Norðaustlæg átt, él eða slydduél fyrir norðan og austan en þurrt að kalla suðvestantil. Kólnandi veður.

Á þriðjudag: Útlit fyrir norðlæga átt með slyddu eða snjókomu en úrkomulítið sunnanlands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×