Mannauðs- og ráðgjafafyrirtækið Attentus hefur fengið til liðs við sig þrjá sérfræðinga, þau Jóhann Pétur Fleckenstein, Maríu Klöru Jónsdóttur og Moniku Katarzyna Waleszczynska. Þau munu taka sæti í koma inn í samskiptateymi Attentus, ásamt því að sinna mannauðsráðgjöf og lögfræðiráðgjöf á sviði vinnuréttar.

Ráðningarnar koma í kjölfar mikillar aukningar í úttektum á mannauðsmálum og samskiptum, að því er kemur fram í fréttatilkynningu. Þá er Attentus að bjóða upp á nýja þjónustu með áherslu á stjórnun erlendra starfsmanna og fræðslu og ráðgjöf um menningarmun.

Jóhann Pétur Fleckenstein hefur lokið meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og B.Sc. í sálfræði frá sama skóla. Jóhann starfaði áður sem mannauðsstjóri hjá Klettabæ ehf. sem er fyrirtæki sem sérhæfir sig í þjónustu fyrir börn og ungmenni.

María Klara Jónsdóttir er lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi en hún lauk meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og stundaði einnig nám við lagadeild Stokkhólmsháskóla. María Klara starfaði síðast sem héraðsdómslögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni og sem lögfræðingur endurupptökunefndar. Áður starfaði hún sem mannauðsstjóri flugfreyja og flugþjóna hjá Icelandair.

Monika Katarzyna Waleszczynska hefur lokið MLM gráðu í forystu og stjórnun með áherslu á mannauðsstjórnun frá Háskólanum á Bifröst og BS gráðu í ferðamálafræði með aukagrein í þjóðfræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið námskeiði í stjórnun og forystu í ferðaþjónustu frá Opnum Háskóla við Háskólann í Reykjavík og er með Leiðsagnapróf frá Leiðsöguskólanum. Monika starfaði áður hjá Íslenskum Fjallaleiðsögumönnum og á ráðningasviði Capacent og Vinna.is, ásamt því að sinna krefjandi verkefnum í samfélagstúlkun og þýðingum í gegnum tíðina.