Fjögur möguleg skipti fyrir Durant sem Brooklyn Nets gæti samþykkt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júlí 2022 15:01 Kevin Durant spilar væntanlega ekki fleiri leiki fyrir Brooklyn Nets liðið. Getty/Al Bello Það verður frekar erfitt að átta sig á landslaginu í NBA-deildinni í körfubolta á næstu leiktíð fyrr en við vitum hvar hinn frábæri Kevin Durant muni spila. Kappinn hefur beðið um að komast frá Brooklyn Nets þrátt fyrir að eiga fjögur ár eftir af samningi sínum.
Það vantar ekki áhugasöm lið því eftir að fréttirnar bárust að Durant vildi í burtu þá stoppaði ekki síminn hjá Brooklyn Nets. Á sama tíma var það strax ljóst að forráðamenn Brooklyn liðsins ætluðu ekki að leyfa honum að fara nema að fá eitthvað svakalega mikið í staðinn. Bandarískir fjölmiðlar hafa verið að velta því fyrir sér hvaða lið geti boðið best í Durant og hér fyrir neðan má sjá slíkar pælingar. Brooklyn Nets hefur gefið það út að félagið vilji fá stjörnuleikmann í skiptum fyrir Durant auk þess að fá valrétti og aðra leikmenn með í pakkanum. Það eru ekki nærri því öll félög í NBA-deildinni sem geta boðið vel en sum eru í betri stöðu en önnur eins og kemur fram í samantekt The Score. View this post on Instagram A post shared by theScore (@thescore) Fjögur lið eru nefnd til leiks en það eru Phoenix Suns, Toronto Raptors, Miami Heat og Golden State Warriors. Suma rekur augun örugglega strax í nafn Golden State Warriors en NBA-meistarnir hafa áhuga á sínum gamla liðsmanni og geta boðið vel. Brooklyn fengi þá spútnikstjörnuna Andrew Wiggins, framtíðarstjörnuna James Wiseman og svo fyrsta valrétt Golden State í nýliðavalinu á næsta ári. Allt frá byrjun hafa lið Phoenix Suns og Miami Heat verið í kapphlaupinu en Durant á að hafa nefnt þau tvö sem lið sem hann vildi spila með. Miami gæti boðið Tyler Herro, Duncan Robinson og marga valrétti úr fyrstu umferð en Phoenix gæti boðið Deandre Ayton, Mikal Bridges og marga valrétti úr fyrstu umferð. Það er almennt talið að það séu mestar líkur á því að Durant endi sem leikmaður Phoenix Suns. Toronto Raptors virðist líka ætla að keppa um Durant og gætu líka boðið vel eða tvo öfluga leikmenn, OG Anunoby, Pascal Siakam sem og valrétt úr fyrstu umferð.
NBA Mest lesið Bayern hyggst ráða manninn sem United losaði sig við Fótbolti Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Íslenski boltinn „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Handbolti „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Íslenski boltinn „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ Íslenski boltinn Ingvar verður ekki áfram: „Haukar ætla sér alltaf meira en þetta“ Sport Líflausir Liverpoolmenn skrá sig út úr titilbaráttunni Enski boltinn Lærisveinninn laut í lægra haldi Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Íslenski boltinn Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Körfubolti Fleiri fréttir Uppgjörið og viðtöl: Haukar 73-75 Stjarnan | Stjarnan áfram eftir naglbít Martin frábær í öruggum sigri „Við erum ekki með stráka sem þurfa að vera hetjur“ Sjáðu mömmu Remy Martin syngja og dansa á hliðarlínunni Luka og félagar jöfnuðu: „Þetta var 90s körfubolti eins og hann gerist bestur“ Sérfræðingarnir ekki sammála og mikil spenna fyrir oddaleikinn „Ég er bara mjög spenntur, þeir eru klárlega ‘the team to beat’“ „Maður hugsar ekki þannig sem þjálfari“ Uppgjör og viðtöl: Álftanes - Keflavík 85-114 | Sjóðheit Keflavíkursókn blés nýliðana burt Murray kramdi Lakers-hjörtun Viðar Örn: Stoltur af liðinu fyrir að skilja allt eftir á gólfinu Einar Árni hættur hjá Hetti „Erfitt að vinna þá þrisvar sinnum í röð“ Aþena er komið í úrslitaeinvígi um sæti í Subway-deild kvenna „Fannst að við hefðum átt að ná þessum mómentum fyrr“ Uppgjör: Þór Þ. - Njarðvík 84-91 | Gestirnir tryggðu sér oddaleik Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum Losnar stjarna Aþenu úr frystiklefa Brynjars Karls? Skoraði 35 stig í fyrri hálfleik „Mér finnst þetta fullmikið“ Fær þriggja leikja bann fyrir pungspark á Hlíðarenda Kawhi-lausir Clippers í engum vandræðum með Mavericks Svanirnir hefja flug í úrslitakeppninni „Við algjörlega frusum“ „Maður harkar þetta bara af sér og heldur áfram fyrir liðið“ Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 73 - 64 | Ótrúleg endurkoma tryggði Stjörnunni oddaleik Mætti eins og Gru í „Despicable Me“ og kláraði síðan Lakers Gaf á sjálfan sig, tróð með látum og fór svo meiddur af velli Úlfarnir með stórsigur í fyrsta leik gegn Suns Þórsarar unnu oddaleikinn og halda áfram í undanúrslit Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Höttur - Valur 97-102 | Valsmenn í undanúrslit eftir framlengdan leik á Egilsstöðum