Staðfestu tæplega þrjátíu ára gamalt kuldamet á Grænlandi Kjartan Kjartansson skrifar 23. september 2020 12:03 Við Grænlandsstrendur. Metkuldinn mældist hátt á Grænlandsjökli í desember árið 1991. AP/Brennan Linsley
Alþjóðaveðurfræðistofnunin hefur nú staðfest að -69,6°C sem mældust á sjálfvirkri veðurathugunarstöð á Grænlandi árið 1991 sé mesti kuldi sem mæst hefur á norðurhveli jarðar. Sérfræðingar stofnunarinnar sem fara yfir eldri veðurgögn telja að búnaðurinn og aðferðirnar sem voru notaðar við mælinguna geri hana gjaldgenga. Nýja kuldametið er 1,8°C lægra en þær -67,8°C sem hafa mælst í tvígang í Síberíu, annars vegar í Verkhojanksk í febrúar árið 1892 og hins vegar í Oimekon í janúar árið 1933. Haldið er utan um ýmis konar veðuröfgar í gagnabanka Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO), þar á meðal mesta hita, kulda og úrkomu. Í sumum tilfellum finna sérfræðingar hennar löngugleymdar veðurathuganir sem geta veitt mikilvægar upplýsingar um þróun loftslags jarðar. Þeir vinna að því að greina og staðfesta slík gögn. Mælingin á Grænlandi var gerð á Klinck-mælistöðinni í 3.105 metra hæð nærri hæsta punkti Grænlandsjökuls 22. desember árið 1991, að því er segir í tilkynningu frá WMO. Sjálfvirka veðurstöðin sem mældi kuldann var á vegum Háskólans í Wisconsin vegna rannsókna á Grænlandsjökli og var virk í tvö ár í byrjun 10. áratugsins. Sérfræðingar WMO þurftu að hafa uppi á vísindamönnunum sem ráku veðurstöðina fyrir tæpum þremur áratugum til þess að geta staðfest metið. Í ljós kom að þeir höfðu haldið samviskusamlega utan um öll gögn sem tengdust mælingunum. Mesta frost sem mælst hefur á jörðinni er -89,2°C á Vostok-stöðinni á Suðurskautslandinu 21. júlí árið 1983. Sérfræðingar WMO vinna enn að því að staðfesta hvort að met hafi verið slegið í Verkhojanksk, þar sem eldra kuldametið var sett, þegar þar mældust 38°C í hitabylgju í Síberíu 20. júní. Það gæti verið mesti hiti sem hefur mælst norðan heimskautsbaugs.
Veður Grænland Norðurslóðir Loftslagsmál Sameinuðu þjóðirnar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Erlent Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Erlent „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Innlent Ætlaði að koma upp um barnaníðing en lenti í klóm hans Innlent Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Innlent Fleiri fréttir Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Reyna að sigla um geiminn á geislum sólarinnar Lýsa yfir áhyggjum af fregnum af fjöldagröfum á Gasa Fá aftur gögn frá tæplega hálfrar aldar gömlu geimfari Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Sjá meira