Hafa tapað milljörðum vegna endurtekinna lokana Oddur Ævar Gunnarsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa 14. apríl 2024 20:45 Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins. Vísir/Arnar Forsvarsmenn Bláa lónsins áætla að beinn kostnaður vegna lokana sökum jarðhræringa sé um fimm milljarðar króna. Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 þar sem rætt var við Helgu Árnadóttur, framkvæmdastjóra sölu, rekstrar og þjónustu Bláa lónsins.
Tilefnið er að lóninu var lokað í morgun vegna gasmengunar. Það var opnað aftur klukkan tvö í dag og þegar fréttastofa ræddi við Helgu í kvöldfréttum voru margir gestir í lóninu. „Þetta er í annað sinn sem við höfum lokað vegna gasmengunar eða spár um gasmengun. Fólkið okkar hefur sýnt gríðarlega þrautseigju í gegnum allar þessar áskoranir. Eins og þetta var í dag þá fóru einhverjir heim þangað til það opnaði og aðrir biðu af sér hér inni en auðvitað er mun öruggara að vera inni en úti eins og menn vita.“ Fimm mánuðir eru síðan Grindavík og svæðið í kring var rýmt. Á þeim tíma hefur Bláa lóninu reglulega verið lokað. „Við erum búin að vera með lokað samtals í rúma þrjá mánuði síðan hræringarnar hófust. Við auðvitað erum á þessu svæði og við ætlum að lifa með þessum jarðhræringum og þessari stöðu, þannig við höfum verið að sýna sveigjanleika eins og hægt er og meta stöðuna hverju sinni auðvitað með sérfræðingum á hverju sviði,“ segir Helga. Hún segir forsvarsmenn lónsins reiða sig á gott og þéttriðið net sérfræðinga. Áætlað sé að beinn kostnaður vegna þessara lokana sé um fimm milljarðar. Hafið þið þegið þessa lokunarstyrki sem hafa verið í boði? „Við höfum litið á það sem samstarfsverkefni okkar og stjórnvalda að viðhalda þeim stöðugildum og þeim störfum sem hjá okkur eru og okkur hefur auðnast það og við höfum viðhaldið öllum átta hundruð störfunum en þessi kostnaður, jú við höfum fengið hluta af þessum styrkjum en beinn kostnaður nettó er um fimm milljarðar.“
Bláa lónið Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Ferðamennska á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Dagar Workplace eru taldir Viðskipti erlent Fyrirtæki hvött til að halda upp á daginn í dag og gera sér dagamun Atvinnulíf Base parking gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Viðskipti innlent Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Viðskipti innlent Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Viðskipti innlent Snillingur í útlöndum: „Þegar vinirnir keyptu sér nammi keypti ég mér diskókúlur“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Segir að Play sé og verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi Guðmundur tilnefndur til Evrópsku nýsköpunarverðlaunanna 2024 Forstjóri Play íhugar að fljúga frekar til Íslands en frá Base parking gjaldþrota Endurkjörinn formaður og fimm koma ný inn í stjórn Þjónusturof hjá alþjóðlegum birgja Samkaup, Heimkaup og Orkan hefja samrunaviðræður Stefna á opnun fyrsta skammtíma raforkumarkaðarins á næsta ári Bein útsending frá Nýsköpunarviku Sparisjóður hagnaðist um 205 milljónir króna Starfsfólk fær 150 milljónir í hlutabréfum Magnús eignast Latabæ á nýjan leik Ráðin framkvæmdastjóri Rue de Net Almennt útboð Íslandshótela hefst á morgun Ætlar að gera Grillhúsið að heitasta staðnum í Borgarnesi Landsvirkjun selur í fyrsta skipti í raforkukauphöll Ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta Eigendur TGI Fridays kaupa Grillhúsið Freyr ráðinn til Eflingar Tilnefndur sem besti leikur fyrir snjalltæki á Norðurlöndum MAST olli Brúneggjum tjóni en RÚV sýknað Tilboðið afturkallað og Eik öðlast frelsi til athafna á ný Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Engin hópuppsögn í apríl Fer frá Deloitte til Góðra samskipta Mun stýra tæknisviði Carbfix Íslendingar þurfi að gæta hófs í vexti efnahagslífsins Hagnaðist um tæpa ellefu milljarða þrátt slæman búskap Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Sjá meira