Robbi Gunn um Haukana og Guðmund Braga: Ég bara skil þetta ekki Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. október 2021 12:00 Guðmundur Bragi Ástþórsson í leik með Aftureldingu. Vísir/Daníel Þór Seinni bylgjan er búin að tala mikið um Guðmund Braga Ástþórsson á þessu tímabili og ekki af ástæðulausu því strákurinn, sem er ekki pláss fyrir í Haukum, hefur spilað mjög vel með liði Aftureldingar.
Guðmundur Bragi Ástþórsson er með 8 mörk og 2 stoðsendingar að meðaltali í leik í fyrstu þremur leikjunum og er þar með 73 prósent skotnýtingu. „Við erum búnir að tala mikið um hann á þessu tímabili og nú vorum við að tala um breidd. Haukarnir eru að lána hann. Robbi byrjum á þér. Af hverju eru þeir að lána hann,“ spurði Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Seinni bylgjunnar. „Ég bara skil það ekki og ég er örugglega í hópi flestra sem skilja þetta ekki. Afturelding er ánægð með það að hann má ekki skipta til baka fyrr en í janúar því það hlýtur bara að vera gefið að þeir kalla á hann aftur til baka í janúar,“ sagði Róbert Gunnarsson, sérfræðingur í Seinni bylgjunni. Klippa: Seinni bylgjan: Af hverju lána Haukarnir Guðmund Braga? „Vonandi fyrir Aftureldingu gera þeir það ekki en ég skil þetta ekki því mér finnst hann vera að standa sig virkilega vel. Hann fær traustið þarna og hann fær mínútur. Ég er virkilega ánægður fyrir hönd ungra leikmanna þegar þeir fá mínútur. Haukarnir gætu vel notað hann,“ sagði Róbert. „Það er ekki spurning um það að Haukarnir gætu notað svona leikmann eins og hann er búinn að vera að spila núna. Hann myndi koma með ákveðin element inn í Haukaliðið sem þeim vantar. Hann er svona dínamískur leikmaður sem getur vel unnið stöðuna maður á mann. Hann er frekar ófyrirsjáanlegur í sínum aðgerðum og hann er svolítið sá sem Haukana vantar,“ sagði Ásgeir Örn Hallgrímsson, sérfræðingur í Seinni bylgjunni. Það má sjá spjallið um Guðmund Braga hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Seinni bylgjan Afturelding Haukar Mest lesið Booker um sparkið í stellið: „Partur af körfuboltanum en þetta var allt of mikið“ Körfubolti Enginn Viktor Gísli en Þorsteinn Leó í hópnum Sport Nýtt merki Þróttar komið á búninginn Íslenski boltinn Fékk ellefu leikja bann fyrir geislann úr heiðursstúkunni Fótbolti Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Handbolti „Með því glórulausasta sem ég hef séð“ Körfubolti Fékk tvö gul spjöld en slapp samt við rautt spjald Fótbolti Gunnhildur Yrsa og Erin eiga von á barni Íslenski boltinn Segir að stressið sé að fara með leikmenn Liverpool Enski boltinn Bað Caitlin Clark afsökunar á karlrembunni í sér Körfubolti Fleiri fréttir Úlfurinn gæti farið til Magdeburg Svona var blaðamannafundur Snorra Steins Perla frá Perlu eitt af flottustu mörkum undankeppninnar Hvað viltu meira? „Góð aðventa með handbolta og skíðum“ Hergeir til Hauka Arnar Freyr öflugur í góðum sigri Melsungen Sveinn Andri samdi við Stjörnuna Ísland í erfiðum riðli á EM Jóhanna Margrét skiptir um lið innan Svíþjóðar Fimmtán dagar á milli leikja í sama einvígi í Olís deild karla Sebastian tekur við kvennaliði Víkings Tap hjá Íslendingaliðinu í fyrsta leik 8-liða úrslita Norska stórliðið örugglega í undanúrslit HSÍ keyri sig ekki aftur í þrot vegna HM Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga „Mættum klárir og ætluðum að svara fyrir laugardaginn“ Alfreð og Dagur saman í riðli á Ólympíuleikunum Spenntur fyrir að halda HM með Íslendingum HM í handbolta 2031 fer fram á Íslandi Magnaður Bjarki Már þegar Veszprém svo gott sem tryggði sér titilinn ÍBV sendi ÍR í sumarfrí Stefán Arnars: Fram er með fjóra og við einn Uppgjör, viðtöl og myndir: Stjarnan - Haukar 21-25 | Stjörnukonur sendar í sumarfrí Stefán Rafn leggur skóna á hilluna Uppgjörið, viðtöl og myndir: Haukar – ÍBV 31-37 | Eyjamenn sendu Hauka í sumarfrí KA komið í sumarfrí en FH heldur áfram Magdeburg bikarmeistari eftir stórsigur gegn Melsungen Flensburg hirti brons í bikarkeppni „Hef ekki trú á að FH geti unnið Val í seríu“ Elvar Örn frábær og Melsungen mætir Magdeburg í úrslitum Sjá meira
Uppgjör og viðtöl: Afturelding - Stjarnan 35-24 | Mosfellingar keyrðu og bökkuðu yfir Garðbæinga