Fagna sumarblíðunni en bíða eftir ferðamönnunum Árni Sæberg skrifar 1. júní 2023 16:00 Hallormsstaðaskógur er góður áfangastaður þessa dagana. Vísir/Vilhelm Sumarið virðist vera gengið í garð á Austurlandi, hiti mældist hæstur 21 gráða við Egilsstaðaflugvöll í vikunni og veður verður milt og gott víða fyrir austan út vikuna hið minnsta. Ferðaþjónustuaðilar eru spenntir fyrir sumrinu.
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að vorið hefur verið með versta móti á stærstum hluta landsins. Mikil vætutíð hefur verið og hiti hefur sjaldan farið í tveggja stafa tölur. Austfirðingar hafa hins vegar fengið að njóta ágætisvors og sumarið er skollið á með krafti fyrir austan. Tuttugu og einnar gráðu hiti mældist á Egilsstöðum á dögunum og fimmtán til nítján gráðu hita og hægviðri er spáð út vikuna. Aðstoðarskógarvörður á Hallormsstað og umsjónarmaður tjaldstæðanna í Atlavík og Höfðavík segir þó að ferðasumarið sé ekki alveg hafið. „Það er svona að byrja. Þó að það komi hitatölur oft í maí, þá er ekkert mikill fjöldi sem kemur. Við rekum þetta tjaldstæði sem fær sjötíu til áttatíu prósent Íslendinga og Íslendingarnir eru auðvitað ekkert komnir í sumarfrí, ekki nema einn og einn. Svo helgarnar eru stærri á þessum tíma og virku dagarnir eru í rauninni minni,“ segir Bergrún Arna Þorsteinsdóttir. Skógurinn orðinn fagurgrænn Bergrún Arna segir vorið hafa verið gott fyrir austan og að Hallormsstaðaskógur komi vel undan vetri. „Við erum auðvitað búin að vera með mjög gott vor og tjaldstæðið kemur mjög vel undan vetri og skógurinn er að verða mjög fallegur. Birkið fer að verða fullútsprungið og hann er orðinn grænn og fallegur skógurinn. Mikil gróska í honum,“ segir hún. Þá segir hún að mikil sókn hafi verið í markaðssetningu Austurlands sem áfangastaðar fyrir erlenda ferðamenn. Þeir hafi hingað til síður lagt leið sína alla leið austur en nú sé það að breytast. Svæðið sé þó enn sem áður kjörinn áfangastaður fyrir Íslendinga sem vilja ferðast innanlands. „Á Austurlandi er mjög fjölbreytt náttúra. Við erum með skóg, við erum með jökla, við erum með þvílíkt magn af fossum. Í Covid-árunum þá fengum við mjög mikið af Íslendingum á Austurland og þeir voru að uppgötva að þetta svæði hefur marga kosti, bæði til að fara í gönguferðir og að njóta náttúrunnar á margvíslegan hátt.
Múlaþing Ferðamennska á Íslandi Veður Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira