Upplýsingasíða í kjölfar hamfaranna

Upplýsingarsíða hefur verið sett upp vegna aðgerða á Seyðisfirði.
Upplýsingarsíða hefur verið sett upp vegna aðgerða á Seyðisfirði. Eggert Jóhannesson

Sett hefur verið upp sérstök upplýsingasíða á vefsvæði Ísland.is vegna hamfaranna sem urðu á Seyðisfirði í desember sl. Þar er að finna upplýsingar um verkefni á vegum stjórnvalda og ýmissa stofnana sem þegar eru í framkvæmd og eru fyrirhuguð vegna hamfaranna. 

Þetta kemur fram vefsvæði Stjórnarráðs Íslands.

„Upplýsingasíðan er á vegum starfshóps sem ríkisstjórnin skipaði til að fylgja eftir málum er varða aðkomu ríkisins að hreinsun á svæðinu og öðrum aðgerðum sem styðja við að koma samfélaginu í starfhæft horf á ný. Í starfshópnum eiga sæti fulltrúar sex ráðuneyta en auk þess starfa með hópnum Víði Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá Almannavarnadeild embættis ríkislögreglustjóra og Gauti Jóhannesson, forseti sveitarstjórnar og tengiliður við sveitarfélagið Múlaþing.

Á upplýsingasíðunni er að finna svör við ýmsum spurningum vegna hamfaranna og verða svör uppfærð í samræmi við nýjustu upplýsingar. Þá munu svör við nýjum spurningum bætast við eftir því sem þurfa þykir,“ segir í frétt á vef Stjórnarráðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert