Beint: Þórólfur og Már ræða sóttvarnaaðgerðir

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Velferðarnefnd Alþingis heldur opinn fjarfund þriðjudaginn 11. janúar kl. 10:00. Tilefnið er umfjöllun nefndarinnar um framkvæmd sóttvarnaaðgerða. Gestir fundarins verða Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Már Kristjánsson yfirlæknir Covid-göngudeildar Landspítalans.

Fylgst verður með fundinum í beinu streymi hér að neðan.

Vegna takmarkana á fundahaldi fastanefnda er ekki unnt að hafa fundinn opinn með hefðbundnum hætti eða taka á móti fjölmiðlum á nefndasviði Alþingis. 

Mynd úr útsendingu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert