Jón Daði og félagar í kjörstöðu

Jón Daði Böðvarsson fagnar marki í leik með Bolton á …
Jón Daði Böðvarsson fagnar marki í leik með Bolton á síðasta tímabili. Ljósmynd/Bolton

Bolton Wanderers vann afar sterkan útisigur á Barnsley, 3:1, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspils C-deildar um laust sæti í ensku B-deildinni í knattspyrnu karla á næsta tímabili.

Staðan er því einkar góð fyrir Bolton fyrir síðari leikinn þar í borg næstkomandi þriðjudagskvöld.

Sigurvegari einvígisins mætir annað hvort Oxford United eða Peterborough United í úrslitaleik á Wembley-leikvanginum.

Jón Daði Böðvarsson var ekki í leikmannahópi Bolton að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert