„Snjórinn er fallegur. Að renna sér á fjöldagröfum er ekki fallegt“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 15. janúar 2021 13:08 Buchenwald-búðirnar náðu yfir afar stórt og skóglent svæði, sem heimamenn nota nú til íþróttaiðkunar í Covid-19 faraldrinum. epa/Filip Singer Forsvarsmenn Buchenwald-safnsins í Þýskalandi hafa varað heimamenn við því að þeir sem verða uppvísir að því að stunda vetraríþróttir nálægt helgum reitum innan svæðisins verða tilkynntir til lögreglu.
Frá þessu greinir meðal annars Der Spigel. Öryggisgæsla hefur verið aukin í kjölfar aukinnar umferðar íþróttaiðkenda um svæðið en þeir hafa meðal annars skilið eftir skíða- og sleðaför á fjöldagröfum. Aðstandendur stofnunarinnar sem heldur utan um rekstur fanga- og þrælkunarbúðanna fyrrverandi segja bílastæði hafa verið full undanfarið og rekja það til þess að nálæg útivistarsvæði hafa verið lokuð vegna Covid-19 faraldursins. Þeir biðla hins vegar til fólks að sýna hinum látnu virðingu og iðka ekki íþróttir á staðnum. Schnee ist schön. Rodeln an Massengräbern in @buchenwald_dora ist nicht schön.https://t.co/cDVlYDWx60— Stift. Gedenkstätten Buchenwald und Mittelbau-Dora (@Buchenwald_Dora) January 14, 2021 Aldrei séð jafn sláandi sýn Buchenwald nær yfir stórt og skóglent svæði en búðunum tilheyrðu meðal annars aðrar minni búðir. Þar er nú að finna safn og minnisvarða, svo eitthvað sé nefnt. Um 280 þúsund menn, konur og börn voru fangelsuð í Buchenwald á árunum 1937 til 1945 og fleiri en 56 þúsund létust í búðunum. Þeir voru annað hvort myrtir eða létust úr næringarskorti og öðrum sjúkdómum. Þeir sem lifðu voru frelsaðir af bandaríska hernum í apríl 1945 en við hermönnunum blöstu hrúgur af líkamsleifum, pyntingaklefar, brennsluofnar og illa leiknir fangar. Dwight D. Eisenhower sagði á sínum tíma að engin sýn hefði haft jafn mikil áhrif á hann. Að sögn sagnfræðingsins Rikola-Gunnar Lüttgenau hefur ávallt verið bannað að stunda íþróttir á svæðinu en það hafi færst í aukanna og fólk fari jafnvel um svæðið á mótorhjólum og hestum án nokkurs tillits til hinna látnu. Steinvölur eru lagðar á minnisvarða og leiði til að minnast látnu og votta þeim virðingu.epa/Martin Schutt
Hernaður Skíðaíþróttir Þýskaland Söfn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Fleiri fréttir Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Sjá meira