Enn leitað að Modestas

Modestas Ant­ana­vicius.
Modestas Ant­ana­vicius. Ljósmynd/Lögreglan

Modestas Antanavicius er enn saknað. Síðast er vitað af ferðum hans í Borg­ar­nesi laug­ar­dag­inn 7. janú­ar.

Á Facebook-síðu lögreglunnar á Vesturlandi segir að björgunarsveitir og lögreglan með aðstoð Landhelgisgæslunnar séu enn að leita þegar leitarskilyrði eru fyrir hendi.

Modestas er 46 ára gamall og býr í Borgarnesi en síðustu upp­lýs­ing­ar um ferðir hans var að finna í eft­ir­lits­mynda­vél­um Olís í Borg­ar­nesi. Hann sást fara þar inn klukk­an 17.09 7. janú­ar, og út nokkr­um mín­út­um síðar.

Þeir sem telja sig hafa orðið varir við hann eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna í síma 4440300 eða í síma 112,“ segir í færslunni. 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert