Málverk Churchills seldist á 1,4 milljarða

Málverk Winston Churchills seldist á 1,4 milljarða íslenskra króna á …
Málverk Winston Churchills seldist á 1,4 milljarða íslenskra króna á uppboði. AFP

Leikkonan Angelina Jolie fékk 1,4 milljarða króna fyrir einstakt málverk eftir Winston Churchill. Málverkið setti hún á uppboð nú í mars. Christie's í London annaðist uppboðið en málverkið keypti Jolie upphaflega með fyrrverandi eiginmanni sínum Brad Pitt árið 2011. 

Mál­verkið Tower of the Koutou­bia Mosque málaði breski for­sæt­is­ráðherr­ann í seinni heims­styrj­öld­inni. Er þetta talið vera eina verkið sem hann málaði á þessu tíma­bili en Churchill var af­kasta­mik­ill áhuga­mál­ari. Churchill gaf Franklin D. Roosevelt, þáverandi Bandaríkjaforseta, málverkið í afmælisgjöf árið 1943. 

Áður höfðu þeir Churchill og Roosevelt setið Casablanca-fundinn fræga, en Churchill dvaldi degi lengur í borginni til að mála málverkið. Gjöfin þótti heldur einstök á sínum tíma og merki um persónulega nálgun Churchills í milliríkjasamskiptum. „Þetta er ekki hefðbundin gjöf sem leiðtogar ríkja skiptast á. Þetta er mjúkt vald, og það er það sem þeirra samband snerist um,“ segir Nick Orchard hjá Christie's.

Franklin D. Roosevelt og Winston Churchill á fundinum í Casablanca …
Franklin D. Roosevelt og Winston Churchill á fundinum í Casablanca árið 1943. Ljósmynd/Wikipedia.org

Son­ur Roosevelts seldi mál­verkið eft­ir að faðir hans lést árið 1945. Nokkr­ir áttu það áður en Jolie og Pitt keyptu það. 

Churchill byrjaði að mála tiltölulega seint á ferlinum eða um fertugt. Hann var heillaður af Marrakesh í Morokkó og ráðlagði meðal annars Roosevelt að heimsækja borgina eftir að þeir höfðu setið fundinn í Casablanca. Hann heimsótti landið fyrst árið 1935 og varð ástfanginn af litunum þar. Hann heimsótti landið alls 26 sinnum á ferli sínum. 

Útsýnið sem Churchill málaði hefur breyst mikið síðan árið 1943.
Útsýnið sem Churchill málaði hefur breyst mikið síðan árið 1943. AFP
Angelina Jolie hagnaðist mikið á sölunni.
Angelina Jolie hagnaðist mikið á sölunni. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson
Fleira áhugavert

Stjörnuspá »

Hrútur

Sign icon Bjóddu þig fram í verkefni sem enginn vill eða veit hvernig á að leysa. Þú hefur gaman af gátum og því að brjóta heilann.
síðasta vika Vinsælustu hljóðbækurnar
1
Lone Theils
2
Anna Sundbeck Klav
4
Birgitta H. Halldórsdóttir
5
Kristina Ohlsson