Vignir stórmeistari í skák

Vignir Vatnar Stefánsson við keppni á EM 2023 í Serbíu …
Vignir Vatnar Stefánsson við keppni á EM 2023 í Serbíu fyrr í mánuðinum. Ljósmynd/EICC2023

Vignir Vatnar Stefánsson varð í dag sextándi stórmeistari Íslendinga í skák frá upphafi þegar hann vann lokaskákina á Arandjelovac-mótinu í Serbíu í dag.

Í lokaskákinni hafði Vignir Vatnar, sem er tvítugur, betur gegn gríska meistaranum Dimitris Alexakis með svörtu í rosaskák, að því er Vignir Vatnar greindi sjálfur frá í samtali við Skák.is.

Alls fékk hann sjö vinninga á mótinu af níu mögulegum. Árangur Vignis Vatnars samsvaraði 2608 skákstigum.

Hann bíður þess nú að verða formlega útnefndur stórmeistari.

Alls tóku 48 skákmenn frá 13 löndum þátt á mótinu í Serbíu. Þar af eru 13 stórmeistarar. 

Vignir er númer átta í stigaröð keppenda en Alexakis númer 37.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka