Fyrsta tap Tottenham í deildinni staðreynd Sigurður Orri Kristjánsson skrifar 11. september 2021 13:30 Patrick Vieira vann sinn fyrsta sigur sem stjóri Crystal Palace EPA-EFE/ANDY RAIN Crystal Palace vann rétt í þessu góðan sigur á taplausu Tottenham liði á heimavelli, 3-0.
Fyrir leikinn voru Tottenham taplausir eftir að hafa unnið fyrstu þrjá leikina á tímabilinu, alla með einu marki gegn engu. Bjuggust því flestir við sigri hvítklæddra í dag. En annað kom á daginn. Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem bæði liðin sköpuðu sér mestmegnis hálffæri þá breyttist leikurinn þegar að Japhet Tagnanga fékk að líta rauða spjaldið á 58. mínútu. Tanganga var á hálum ís eftir að hafa fengið fyrra gula spjaldið sitt nokkrum mínútum áður fyrir brot á Wilfried Zaha og var dómari leiksins ekki lengi að draga upp seinna gula þegar Tanganga var seinn í tæklingu. There s your Palace. #CPFC | #CRYTOT pic.twitter.com/83Rcjd6T4x— Crystal Palace F.C. (@CPFC) September 11, 2021 Í kjölfarið sóttu heimamenn stíft og fengu vítaspyrnu á 76. mínútu þegar að Ben Davies handlék boltann inni í teignum. Zaha fór á punktinn, gerði engin mistök og skoraði af öryggi framhjá Hugo Lloris í markinu. En Crystal Palace voru ekki hættir. Á 84. mínútu vann Zaha boltann ofarlega á vellinum og geystist fram völlinn. Hann átti svo fyrirgjöf á Odsonne Edouard sem skoraði með hnitmiðuðu skoti úr teignum. 2-0 og Tottenham búið að játa sig sigrað. Edouard var svo aftur á ferðinni á 92. mínútu eftir skyndisókn og skoraði þriðja markið. Þetta var fyrsti deildarsigur Palace undir stjórn Patrick Vieira. Tottenham eru ennþá á toppi deildarinnar með níu stig eftir fjóra leiki en nokkur lið geta komist ofar í dag. Crystal Palace er með fimm stig.
Enski boltinn Mest lesið Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Golf Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild Fótbolti Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Fótbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Lowry hástökkvari dagsins og blandar sér í baráttuna Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Uppgjörið,viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Elvar stigahæstur í grátlegu tapi „Ég á von á því að það verði allt önnur tónlist hjá þeim í Grikklandi“ „Ef við þolum þann þrýsting sem verður í Grikklandi eigum við skilið að verða Evrópumeistarar“ Aníta tryggði sér Norðurlandameistaratitilinn Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Fury í ham og ýtti Usyk í vigtuninni Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Sjá meira