Rafíþróttir

Ljósleiðaradeildin í beinni: Tveir hörkuleikir í kvöld

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Ljósleiðaradeildin í CS:GO heldur áfram í kvöld.
Ljósleiðaradeildin í CS:GO heldur áfram í kvöld.

Ljósleiðaradeildin í CS:GO heldur áfram í kvöld með tveimur hörkuleikjum.

Nú klukkan 20:30 hefst viðureign Fylkis og Ármanns, en liðin eru í sjötta og sjöunda sæti deildarinnar. Fylkir getur jafnað Ármann að stigum með sigri, en sigri Ármann í kvöld nær liðið að slíta sig frá botnliðunum tveim, Fylki og Kórdrengjum.

XY Esports og Vallea eigast svo við í síðari viðureign kvöldsins, en þau sitja í þriðja og fjórða sæti deildarinnar. XY Esports þarf á sigri að halda til að halda í við Vallea í þriðja sætinu, en Vallea getur jafnað Þór í öðru sæti deildarinnar með sigri í kvöld.

Hægt verður að fylgjast með leikjum kvöldsins á Stöð 2 eSport frá klukkan 20:15, eða á Twitch-síðu Rafíþróttasambands Íslands hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×